157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[19:08]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Við ræðum hér ein af mörgum skattahækkunaráformum ríkisstjórnarinnar á fólk og fyrirtæki í landinu. Áður en lengra er haldið langar mig að þakka hv. framsögumanni meirihlutaálits, Pawel Bartoszek, fyrir framsögu sína hér fyrr í dag og einnig framsögumanni 1. minnihlutaálits, Vilhjálmi Árnasyni, og framsögumanni 2. minnihlutaálits, Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, fyrir þeirra framsöguræður í dag. Skattahækkanir — ríkisstjórnin kýs að kalla þetta öðrum nöfnum eins og við höfum verið að ræða hér í dag og síðustu daga. Ríkisstjórnin reynir þannig að slá ryki í augu fólks með því að kalla þessar áætlanir sínar öðrum nöfnum og nú er ég ekki bara að tala um skattafrumvarpið sem við erum að ræða í kvöld. Ég veit hins vegar að fólkið í landinu sér í gegnum þetta fals og leikrit ríkisstjórnarinnar. Já, við erum að tala um verðmætasköpunarhaust ríkisstjórnarinnar en plön ríkisstjórnarinnar eru því miður ekki að taka utan um fólk og fyrirtæki í þessu landi heldur þveröfugt. Fjárlagafrumvarp og frumvörp því tengd eru ekkert annað en aðför að öllu venjulegu fólki og nefni ég sérstaklega bændur, aðför að fyrirtækjum, aðför að landsbyggðinni, aðför að byggðafestu, ferðaþjónustu og fleiru. Þetta er sleggjan sem ríkisstjórnin hefur talað svo mikið um, að berja niður venjulegt fólk og fyrirtæki og möguleika til verðmætasköpunar, draga úr samkeppnishæfni Íslands. Þetta er sleggjan, gott fólk. Það eru fyrirtæki og venjulegt fólk í þessu landi sem borgar brúsann fyrir útgjaldaþenslu ríkisstjórnarinnar. Skattahækkanir eru nefnilega ekki til þess fallnar að auka verðmætasköpun nema síður sé. Þetta ætti náttúrlega öllum að vera ljóst. En hvað svo sem ríkisstjórnin kýs að kalla þessar skattahækkanir munu þær koma niður á fjárfestingu og framleiðni fyrirtækja og svo auðvitað þynna veski almenns launafólks í þessu landi. Þetta er allt saman svo öfugsnúið og furðulegt að ríkisstjórn leidd af formanni Jafnaðarmannaflokks Íslands vinni ekki að því að auka ráðstöfunartekjur fólksins í landinu. En fólkið í landinu sér í gegnum þetta og það eru margir uggandi og ósáttir.

Eitt aðalstefnumál ríkisstjórnarinnar sjáum við svo í fjárlögum og frumvörpum þeim tengdum eins og kílómetraskattsfrumvarpinu sem við ræðum hér í dag. Það er verið að leggja sífellt meiri álögur á fólk og fyrirtæki, skattahækkanir á venjulegt fólk. Þessar álögur, skattahækkanir, munu ekki síst bitna hart á landsbyggðinni. Ég hef hlustað á ræður stjórnarmeirihlutans í dag og þau þvertaka fyrir það að þetta bitni hart á landsbyggðinni en við erum þá bara ósammála um það. En það verður að segjast í þessu samhengi að það hefur verið dálítið sérstakt að hlusta á meiri hlutann lýsa því að núverandi ríkisstjórn sé einhvern veginn bara áframhaldandi handlangari í verkefnum fyrri ríkisstjórnar, jafn ómöguleg og hún var á köflum, en það réttlætir auðvitað ekkert illa ígrundaðan kílómetraskatt.

Þá vil ég nefna það, áður en meiri hlutinn gagnrýnir mig fyrir það, að það er bara sanngjarnt að við þingmenn ræðum efnisatriði þessa máls og annarra mála sem tengjast þessu samhliða. Við verðum að fá einhverja heildarsýn á það með hvaða hætti hæstv. ríkisstjórn ætlar að breyta gjaldtöku af akstri og ökutækjum eða skattlagningu. Það verður að leiða fram hver heildaráhrifin eru, hver heildarmyndin verður að öllum þessum málum fram komnum og eftir atvikum samþykktum. Annað er ekki boðlegt fyrir bæði þingmenn og almenning í þessu landi. Hér hefur hæstv. ráðherra auðvitað lýst því að ná eigi markmiði fyrri ríkisstjórnar, um 1,7% skattlagningu á akstur og ökutæki af vergri landsframleiðslu, á grundvelli stefnumörkunar fyrri ríkisstjórnar. Um er að ræða gríðarlega hækkun á sköttum og gjöldum milli ára sem leggst auðvitað á heimili landsins og fyrirtæki af fullum þunga, á venjulegt fólk. Hækkunin milli ára, 11 milljarðar í aukna gjaldtöku á akstur og ökutæki. Annars vegar er það kílómetragjaldið eða skatturinn vegna notkunar bifreiða upp á 3,3 milljarða og hins vegar endurskoðun á skattlagningu ökutækja og eldsneytis upp á 7,5 milljarða. Þetta mun hlutfallslega bitna mest á þeim sem lægstar hafa tekjurnar og eiga léttustu bifreiðarnar. Það er bara þannig. Eðlilega hafa þeir sem það hafa getað brugðist við áður en þetta skellur á almenningi í landinu og innflutningur á bílum hefur verið mikill síðustu mánuði. Mér er því mjög til efs að áætlanir hæstv. fjármálaráðherra muni standast. Því skal haldið til haga að því hefur verið flaggað áður að kílómetragjaldið væri bara kerfisbreyting á núlli, að ekki væri um að ræða viðbótargjaldtöku á almenning og fyrirtæki vegna þess. En nei, 11 milljarðar á ári, takk, í aukna skatta og gjöld af akstri og ökutækjum. Þetta þýðir aukin gjöld fyrir venjulega fjölskyldu, viðbótargjöld, skatt sem fer í hítina, skatt sem fer í ríkissjóð, ekki til uppbyggingar eða viðhalds vegakerfisins, ekki frekar en hingað til.

Upptaka kílómetraskatts — já, ég segi kílómetraskatts því að þetta er ekkert annað en skattur — er til að mynda til þess fallin að hafa veruleg neikvæð áhrif á ferðaþjónustu sem er ein öflugasta stoð tekjuöflunar ríkissjóðs og því er rétt að halda því fram að verið sé að grafa undan efnahag þjóðarinnar með upptöku þessa skatts. Þetta er einnig landsbyggðarskattur, eins og ég nefndi hér áðan, því að víða um land þurfa íbúar að sækja sér þjónustu, jafnvel lögbundna, um langan veg, sem kallar á aukinn kostnað verði kílómetraskatturinn að veruleika. Já, vel á minnst, rökin fyrir tvöföldun veiðiskattsins voru einmitt þau að þau gjöld yrðu nýtt í vegakerfið, en við eigum eftir að sjá það, gott fólk. Einmitt: Þessi ríkisstjórn er að hækka skatta á venjulegt fólk í þessu landi og beita blekkingum. Það á þó ekki við um alla og ég met það við hv. þm. Pawel Bartoszek að hann fer ekkert í grafgötur með að þetta er skattur og það er bara vel að gangast við því.

Við upptöku kílómetraskattsins mun Ísland verða eina landið í Evrópu sem notast við slíkt kerfi sem aðrar þjóðir hafa ekki tekið upp eða horfið frá, líklega sökum flækjustigs og ósanngirni sem því fylgir. Regluverkið, umfang við eftirlit og álagningu og hátt hlutfall leiðréttinga veldur því að fyrirséð er að utanumhaldið mun valda fjölda einstaklinga og fyrirtækja, ekki síst í ferðaþjónustu, bæði erfiðleikum og kostnaði. Á það ber að líta að bifreiðaeigendur greiða um 78 milljarða í skatta vegna bifreiða sinna en innan við 50 milljarðar fara í að viðhalda og byggja upp vegakerfið. Það hafa margir lýst vonbrigðum sínum vegna þessara áforma ríkisstjórnarinnar varðandi þessa skattlagningu.

Mig langar aðeins að færa mig yfir í umsögn Bændasamtakanna sem fjalla eðlilega talsvert um landsbyggðina. Svo langar mig aðeins að koma inn á kolefnisgjaldið sem því tengist. Bændasamtökin segja í umsögn sinni, með leyfi forseta:

„Gjaldtaka kílómetragjalds bitnar einna helst á landsbyggðinni og má því færa rök fyrir því að með frumvarpinu sé lagður til landsbyggðarskattur. Slíkt skýtur skökku við þegar stjórnvöld hafa unnið að mikilvægi byggðafestu og að dreifðari byggðir leggist ekki af. Kostnaður mun aukast við t.a.m. leikskólaakstur, skólaakstur, verslunarferðir o.s.frv. en bændur þurfa oft að keyra langar vegalengdir með börn sín í skóla.“

Ég vil bæta við þetta. Eðlilega eru börn á landsbyggðinni líka í íþróttum og það þarf að keyra mjög langar vegalengdir þegar farið er með börn til að sækja æfingar og í keppnisferðir og alls konar.

Ég held áfram að lesa upp úr umsögn Bændasamtakanna, með leyfi forseta:

„Í tilviki bænda verða sérstaklega aðföng til búrekstrarins dýrari, s.s. með flutningi á fóðri, áburði og annarri búrekstrarvöru. Þá er það eins með farið varðandi flutning á vörum bænda til neytenda. Í því felst raunveruleg hætta á auknum kostnaði fyrir neytendur og skerðingu á tekjum bænda. Enn fremur er hætta á að samkeppnishæfni fyrirtækja á landsbyggðinni dragist saman með auknum flutningskostnaði. Álagning kílómetragjalds, hins vegar, er aðferð sem notuð er til að skattleggja notkun ökutækja á vegum. Gjaldið mun ótvírætt hafa óbein áhrif á landbúnaðinn í heild sinni.“ — Gjaldið mun ótvírætt hafa óbein áhrif á landbúnaðinn í heild sinni og landbúnaðurinn á nú nógu mikið í vök að verjast. Það er ekki á það bætandi, vil ég segja.

Mig langar aðeins að ræða kolefnisgjaldið. Það er líka gríðarlega mikilvægt fyrir bændur að þetta fari ekki allt í vitleysu. Og hér segir, með leyfi forseta, í umsögn Bændasamtaka Íslands:

„Að auki er með frumvarpinu lagt til að lög um olíugjald og kílómetragjald nr. 87/2004 verði felld úr gildi. Vert er að hafa í huga að dráttarvélar og aðrar landbúnaðarvélar ganga flestar á litaðri olíu. Lituð olía er undanþegin frá olíugjaldi fyrir dráttarvélar og aðrar landbúnaðarvélar. Litaðri olíu er ekki ætlað að vera til notkunar í almennum samgöngum og með undanþágunni frá álagningu olíugjaldsins er stuðlað að auknum afköstum í landbúnaðarframleiðslu sem styrkir í heild arðsemi í landbúnaðinum.“

Hlustið þið nú, með leyfi forseta:

„Undanþágan er þannig mikilvægur stuðningur við íslenskan landbúnað, þar sem hún dregur úr rekstrarkostnaði og eykur samkeppnishæfni bænda. Þannig fellur undanþágan úr gildi verði frumvarpið að lögum.“

Ég endurtek, frú forseti: Þannig fellur undanþágan úr gildi verði frumvarpið að lögum. Að sama skapi hækkar kolefnisgjald á litaða olíu þannig að þetta er alls ekki gott fyrir landbúnaðarframleiðslu í þessu landi og fyrir bændur. Verði þetta frumvarp að lögum hefur kolefnisgjaldið hækkað gríðarlega mikið frá síðustu áramótum. Ég ætla ekki að fara yfir þær tölur hérna. Samtök ferðaþjónustunnar benda t.d. á það í sinni umsögn að upptaka kílómetraskattsins sé ekki aðeins íþyngjandi kostnaður og aukið flækjustig vegna innheimtunnar fyrir ökutækjaleigur heldur muni hafa neikvæð áhrif á eftirspurn einstaklinga eftir ferðalögum til Íslands í ljósi þeirra verðhækkana sem gjaldið hefur í för með sér á útleigu ökutækja. Auðvitað hefur þetta allt saman komið fram hér í umræðunni í dag þannig að þetta eru kannski að einhverju leyti endurtekningar, forseti, á því sem hefur komið fram í ræðum annarra sem hafa stigið hér í pontu í dag. Skatturinn hefur áhrif á samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu í heild sinni og verðmætasköpun landsins. Óhóflegar hækkanir skatta og gjalda sem og nýjar álögur geta dregið úr komum erlendra ferðamanna og innlendri neyslu meðan á dvöl þeirra stendur.

Þá hafa Samtök ferðaþjónustunnar einnig gagnrýnt hækkun vörugjalda eða vöruskatts á ökutæki og benda á að hækkað verð á ökutækjum muni bitna á ferðaþjónustufyrirtækjum og valda verðhækkunum til viðskiptavina þeirra. Ég verð að segja að ég gat ekki séð í nefndaráliti meiri hluta — mér sýnist nákvæmlega ekkert komið til móts við bændur eða við þau miklu fjárhagslegu áhrif og flækjustig sem ökutækjaleigur verða fyrir þegar áætluð innheimta hefst þann 1. janúar 2026. Þá er talið að kostnaður sem mun lenda á bílaleigum aðeins vegna innheimtu kílómetraskattsins sé áætlaður um 1,5 milljarðar kr. á næsta ári. Aðeins sá kostnaður mun þurrka út nær allan hagnað atvinnugreinarinnar, sem var árið 2024 um 1,8 milljarðar. En það er náttúrlega bara þannig, eins og þingheimur hlýtur að vita, að til þess að reka fyrirtæki þurfa þau að bera sig og sýna hagnað. Það segir sig náttúrlega sjálft. Þá er sem sagt ótalinn allur annar kostnaður sem felst í innheimtu og flækjustigi vegna gjaldsins og leggst á ökutækjaleigur. Það sem ökutækjaleigur eru í raun og veru að biðja um er lengri fyrirvari, aðlögunartími.

Aðeins meira um slæm áhrif á ferðaþjónustuna og samkeppnishæfni Íslands til lengri tíma. Kílómetraskatturinn dregur úr samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og þar með Íslands, dregur úr verðmætasköpun Íslands, lækkar verga landsframleiðslu og minnkar fjárfestingargetu. Svo getur jafnframt farið svo að ferðamenn ákveði að stytta ferðalag sitt um Ísland og ferðist skemur og fari síður út á landsbyggðina í ljósi aukins kostnaðar vegna kílómetraskattsins sem birtist þeim áður en ferðin hefst. Það tikkar inn í, eins og ég vil halda fram, landsbyggðarskatt; við viljum að ferðamenn hangi ekki bara hér á höfuðborgarsvæðinu í stað þess að fara um allt landið. Það er hætta á að ferðamenn aki einfaldlega minna á ferðalagi sínu um Ísland ef þeir þurfa að greiða kílómetraskatt og akstur verður ekki lengur ótakmarkaður. Af þessu leiðir að ferðamenn aka síður út á landsbyggðina og það dregur úr dreifingu ferðamanna um landið. Það er ekki gott. Þetta er ekki gott frumvarp. Það er enginn fyrirsjáanleiki og gildistakan eftir nokkra daga. Þá vil ég nefna það sérstaklega, sem manneskja sem hef starfað í sendiráðum hér og þar, að það vekur athygli mína að ökutæki í eigu erlendra sendiráða eða erlendra sendiráðsmanna erlendra ríkja eru undanskilin. Hvers vegna að undanskilja þessa aðila frá því að greiða kílómetragjald ef þetta er ekki skattur? Jú, það er vegna þess að þetta er skattur eins og ég veit að hv. þm. Pawel Bartoszek hefur viðurkennt. Þetta er nefnilega staðfesting á því. Þetta er skattur og aftur skattur. Væri þetta eitthvað annað en skattur væru ökutæki í eigu erlendra sendiráða og erlendra sendiráðsmanna erlendra ríkja ekki undanþegin. Ég bara óska eftir því að aðrir stjórnarþingmenn í meiri hluta taki hv. þm. Pawel Bartoszek sér til fyrirmyndar og hætti að slá ryki í augu almennings og kalli þetta bara kílómetraskatt. Þetta er ekkert annað en skattur. Í nefndaráliti meiri hlutans er það raunar staðfest, með leyfi forseta: Þeir aðilar sem eiga rétt á endurgreiðslu samkvæmt lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, á grundvelli alþjóðasamninga, tvíhliða samninga eða sérstakra laga þar um skulu vera undanþegnir kílómetragjaldi.

Frú forseti. Skýrara verður þetta ekki. Þetta er skattur. Mig langar aðeins að vitna til umsagnar Samtaka atvinnulífsins, með leyfi forseta, því til stuðnings að um íþyngjandi skatt sé að ræða:

„Að mati samtakanna er það grundvallaratriði þegar settir eru á íþyngjandi skattar að slíkar breytingar séu ekki innleiddar nema með þannig fyrirvara að fyrirtæki og aðrir hagaðilar hafi nægjanlegt svigrúm til þess að bregðast við breyttum forsendum í rekstrarumhverfinu. Í þessu tilviki telja samtökin að gildistökuákvæði frumvarpsins endurspegli ákveðið skilningsleysi á markaðsaðstæðum fyrirtækja, einkum í ferðaþjónustu en jafnframt á viðbragðsgetu einstaklinga og stjórnvalda sjálfra við umfangsmiklum kerfisbreytingum. Réttast væri að gildistöku laganna væri því frestað um tólf mánuði.“

Að endingu langar mig að vitna til nefndarálits 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar frá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, þeirri kjarnorkukonu. Þar koma fram tillögur um afgreiðslu, með leyfi forseta:

„Í ljósi þess að enn á eftir að greiða úr mörgum vafaatriðum er málið ekki tækt til afgreiðslu. Að framangreindu virtu leggur 2. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.“

Til vara leggur 2. minni hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að lögin taki ekki gildi fyrr en 1. janúar 2027 og mér finnst þetta ekkert, miðað við allar þær fjölmörgu umsagnir sem hafa komið hér inn, annað en sanngjarnt að gildistöku laganna, ef engu verður breytt, verði í það minnsta frestað um eitt ár þannig að við getum haft fast land undir fótum.