kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar góðu yfirferð um þetta kílómetragjald. Þetta kílómetragjald er náttúrlega skattur. Þetta er gjald sem leggst á fyrirtækin og heimilin í landinu. Þetta er illa undirbúið. Það er ekki hlustað á þau varnaðarorð sem er búið að hafa uppi víðs vegar, eins og svo sem fram hefur komið og kom fram í ræðu hv. þingmanns, af bílaleigunum sem og öðrum. Þetta gjald mun skila sér í hækkuðum kostnaði. Hækkaður kostnaður mun skila sér í hækkaðri vísitölu og hækkuðu verði á neysluvörum almennings og þar af leiðandi hærri verðbólgu sem mun skila sér í hærri verðtryggðum skuldum heimilanna. Þessa tengingu á öllum þessum sköttum er hæstv. ríkisstjórn algjörlega fyrirmunað að skilja.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Í staðinn fyrir að innleiða þetta kílómetragjald, sem er í rauninni mjög röng nálgun, væri ekki miklu sniðugra að hætta bara við kílómetragjaldið og frekar fara að innheimta veggjöld? Í staðinn fyrir að innheimta kílómetragjald sem á að koma inn í innviðafélagið, að mér skilst, sem er reyndar ekki búið að stofna en samt segir ríkisstjórnin að það sé búið að fullfjármagna samgönguáætlun með óstofnuðu innviðafélagi, væri ekki miklu sniðugra að innheimta veggjöld eins og við þekkjum víðs vegar úr Evrópu? Ferðamenn þekkja það og það er miklu betra í allri framkvæmd og innheimtu. Er hv. þingmaður ekki sammála mér í því að í staðinn fyrir að innheimta kílómetragjald ætti að fara að innheimta veggjöld?