157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[19:31]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir prýðisgott andsvar. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, ekki hefur verið hlustað á varnaðarorð. Það er um að ræða gríðarlega miklar hækkanir á alls kyns kostnaði fyrir hlutaðeigandi. Þingmaðurinn spyr hvort þeirri sem hér stendur myndi hugnast í stað þess að innleiða kílómetragjaldið að innleiða veggjöld. Fyrir það fyrsta þurfum við ekkert á þessu kílómetragjaldi að halda. Þeir aurar sem koma inn sem eru nú þegar innheimtir fara ekki allir í vegaframkvæmdir eins og þeir ættu að gera. Ég myndi frekar byrja á því að setja þá aura sem eru að koma inn, og ég er að tala um milljarða, setja það sem er verið að taka af bifreiðaeigendum og öðru slíku í það sem það á að fara; í vegina. Við þurfum ekkert á þessu kílómetragjaldi að halda. Við erum með þennan fyrsta fasa sem vonandi verður þessi eini fasi vegna þess að við þurfum ekkert á þessum kílómetragjöldum að halda. Þingmaðurinn spyr hvort ég vilji frekar innleiða veggjöld. Ég held að við þurfum ekkert á þessum auknu gjaldheimtum að halda vegna þess að það er verið að taka nóg. Ég er bara þannig og bæti því við hérna að mér finnst ekki eðlilegt t.d. að ætla að áætla, eins og ég heyri að er gert, varðandi framlagða samgönguáætlun sem við erum ekki farin að ræða í þinginu. (Forseti hringir.) Mér finnst ekki eðlilegt að það standi til að fara að innheimta gjöld af framkvæmdum sem þegar eru búnar að borga sig upp.