kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar fyrra svar. Það sem ég er að horfa til er í rauninni færeyska módelið sem byggðist á Spalarmódelinu, Hvalfjarðarmódelinu, Hvalfjarðargöngunum, þar sem var innheimt veggjald til að standa undir kostnaði við göngin. Ég hefði haldið að það væri hægt að koma til móts við bíleigendur með því t.d. að fella niður vörugjöld af ökutækjum, með því að fella niður kannski alls kyns skatta og gjöld. Og ég tek undir með hv. þingmanni að ökutækjaeigendur eru yfirskattaðir og það skilar sér ekki allt í vegakerfið og enn og aftur á að bæta í. Það er ekki flensan sem er að ganga hér í þingsal, það er skattasýki sem er að ganga hér í þingsal hjá hv. stjórnarliðum og hæstv. ríkisstjórn. Ég velti því fyrir mér hvort við getum einfaldað þetta kerfi, ef við fellum í staðinn niður vörugjöld og lækkum ýmsa aðra skatta á móti og bætum alls ekki við, hvort það væri ekki vel til þess fallið að einfalda kerfið og þá værum við bara með ákveðin veggjöld á stærri samgöngumannvirki eins og stofnbrautir, stærri brýr og jarðgöng, og síðan væri á fjárlögum ákveðið vegaviðhald og þetta almenna.
En ég velti því fyrir mér í seinni spurningu til hv. þingmanns að nú hafa margir aðilar, Samtök atvinnulífsins og fleiri, varað sterklega við efnahagslegum áhrifum sem allar þessar aðgerðir geta haft með því að hækka kostnað og þar af leiðandi hækka verðbólguna og annað, menn hafa talað um að forsendur kjarasamninga gætu brostið o.s.frv.: Finnst ekki þingmanni það mjög alvarlegt að ríkisstjórnin sé ekki að horfa til og taka mark á þeim varnaðarorðum um hvað allar þessar skattahækkanir geti haft mikil áhrif á verðbólgu og annað?