kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir seinna andsvarið. Hann byrjaði andsvarið sitt áðan á vangaveltum um tvennt af illu. Við því vil ég segja þetta: Við verðum að passa okkur á að vera ekki hérna með tvöfalt eða jafnvel margfalt kerfi. Það er einhvern veginn það sem er verið að búa hér til. Ég upplifi að það sé verið að búa til ekki bara tvöfalt heldur margfalt kerfi. Ef þetta frumvarp fer í gegn svona erum við komin með kílómetraskattinn og við erum með vöruskattinn. Kemur svo ekki bara einhver meiri skattur? Er það ekki bara þriðji fasinn? Er það ekki bara það sem kemur næst? Það sem mér er mjög umhugað um er að við höfum gott skilvirkt kerfi sem þýðir það að við verðum ekki með margfalt eða tvöfalt kerfi heldur einfalt. Ég vil mjög gjarnan fella vöruskattinn niður og ef vöruskatturinn yrði felldur niður og þetta frumvarp hér lagt til hliðar þá væri hægt að vera jafnvel með eitt kerfi sem gæti verið veggjöld. Málið snýst um að vera ekki með margfalt kerfi. En það sem skiptir mestu máli er að skattarnir sem eru teknir, eins og t.d. af ökutækjaeigendum og bensíngjöld og alls konar, fari í það sem þeir eiga að fara í. Þeir eru ekki að fara í vegina eins og staðan er í dag. Ég horfi á hv. þingmann Pawel Bartoszek. Þessi gjöld sem eru tekin (Forseti hringir.) þurfa að fara í það sem þau eiga að fara í. Þetta er bara eins og með loftslagsskattana, þeir eru ekki að fara í loftslagsmál heldur í eitthvað allt annað.