kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar ágætu ræðu og hennar orð í minn garð. Mig langar kannski að segja að þessi umræða um skatta eða gjöld — ég hef aldrei verið feiminn við að tala um þetta sem skatt. Ég held að það sé bara eitthvert svona nafnamál, við erum með olíugjald, vörugjöld, áfengisgjöld og tóbaksgjöld, allt eru þetta skattar að mínu mati þótt þeir séu kallaðir þetta. Ef hún veltir fyrir sér af hverju þetta er kallað kílómetragjald en ekki kílómetraskattur þá kannski næst þegar Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn fara í andsvör hver við annan geta þau spurt hvert annað að því, af því að þessu nafni var jú komið á í tíð fyrri ríkisstjórnar, ekki bara í þessu frumvarpi heldur auðvitað í því kílómetragjaldi sem var lagt á. Ég hlakka til að sjá þessi skoðanaskipti næst þegar þessir flokkar fara í andsvör hver við annan.
Mig langar aðeins að koma að einu. Það var orðað einhvern veginn eins og nefndin hafi í rauninni ekkert komið til móts við þær áhyggjur sem komu fram í umsögn Bændasamtakanna. Þá verð ég að nefna, og ég vitna hér í umsögn Bændasamtakanna, að þar er sagt, með leyfi forseta:
„Með vísan til alls framanrakins þá fagna Bændasamtökin því að búið sé þannig um hnútana að það sé skýrt tekið fram í ákvæði frumvarpsins um að gjaldskyldan taki ekki til dráttarvéla eða eftirvagna sem nýtt eru til landbúnaðarstarfa, þ.e. landbúnaðartæki, þannig að dráttarvélar í flokki T1 og T2 eru undanskyldar gjaldskyldu, og er nefndinni þakkað sérstaklega fyrir það.“
Þannig að nefndin fékk þakkir fyrir að hafa undanskilið T1 og T2. Síðan biðja Bændasamtökin um að T5 sé einnig undanþegið og nefndin gerir ekki bara það heldur undanskilur líka T3 og T4 sem eru þá minni vélar. Þetta eru þá í rauninni einhvers konar fjórhjól sem oft eru notuð til landbúnaðarstarfa. Nefndin kaus að undanskilja það kílómetragjald líka vegna þess að þetta voru ekki stórir gjaldstofnar, án þess að það hafi endilega sérstaklega verið beðið um það í umsögn Bændasamtakanna, en auðvitað verður því ekki mótmælt heldur, þannig að ég vil bara taka fram að sannarlega stóð vilji nefndarinnar til þess að koma til móts við þessar áhyggjur Bændasamtakanna, alla vega þennan hluta, og nefndinni meira að segja þakkað fyrir það í umsögn Bændasamtakanna.