kílómetragjald á ökutæki.
Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir andsvarið. Það gleður mig að heyra hvað hann er ófeiminn við að tala um skatta.
Varðandi það sem kemur inn í umsögn Bændasamtakanna þá langar mig að benda hv. þingmanni á eitt varðandi kolefnisgjaldið. Ég veit að ég er að svara spurningum hans en það er náttúrlega engin spurning sem hann beindi til mín, en verði þessi lög að veruleika, þessi kílómetraskattur, þá var bent á það í umsögn Bændasamtakanna að lög nr. 87/2004 verði felld úr gildi. Þau skipta bændur afskaplega miklu máli vegna þess að allar þær dráttarvélar og þessi landbúnaðartæki, flest hver, nota litaða olíu og þessi undanþága hefur verið mjög mikilvægur stuðningur við íslenskan landbúnað. Eins og ég nefndi í ræðu minni áðan dregur hún úr rekstrarkostnaði og eykur samkeppnishæfni bænda. Þá langar mig að beina því til hv. þingmanns, ef það er rétt skilið hjá mér að þessi lög falli úr gildi og þessar undanþágur verði ekki lengur heimilar fyrir bændur, ef frumvarpið fer aftur inn í nefnd að lokinni þessari umræðu, hvort menn gætu þá tekið sig saman um að halda þessari undanþágu fyrir bændur ef þessi lög falla úr gildi.