157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[19:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið og hennar spurningu. Ef það væri, þá þyrftum við að viðhalda fyrirkomulagi litaðrar olíu og mér finnst ávinningur af því að hætta með það. Það þýðir auðvitað að allt venjulegt olíuverð á Íslandi mun lækka miðað við þá olíu sem er keypt til þess að aka á vegum og ég sé ekki hvernig er auðveldara að koma til móts við þennan hluta öðruvísi en með einhvers konar endurgreiðslukerfi, þannig að ég myndi ekki mæla með því að við myndum viðhalda fyrirkomulagi litaðrar olíu enda held ég að það sé einn af ávinningum þessa nýja fyrirkomulags að geta hætt með það.

Mig langar síðan að spyrja hv. þingmann, vegna þess að það gerir þetta athyglisvert fyrir þann sem les álit frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, út í varatillögu sem þar kemur fram þar sem er lagt til að gildistöku frumvarpsins sé frestað um eitt ár og síðan leggur 2. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingum. Þá langar mig að spyrja hvort það sé þannig að verði það niðurstaða þingsins að samþykkja þessa breytingartillögu um að gildistakan verði eftir ár, sem sagt ekki núna í ár heldur um áramótin 2027, muni Miðflokkurinn ýta á græna takkann í þessu frumvarpi þegar kemur til lokaafgreiðslu þingsins.