157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[19:44]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Þingmaðurinn spyr hvort Miðflokkurinn muni verða á græna takkanum. Áður en ég kem að því langar mig að segja um kolefnisgjaldið og þessa undanþágu varðandi lög 87/2004: Mér heyrist ekki vera vilji til þess að halda áfram þessari undanþágu fyrir bændur en það mun þá valda gríðarlegum búsifjum fyrir landbúnaðarframleiðslu. — Jú. Ég sé að hv. þingmaður ygglir brýrnar. Það er einmitt hætta á að hækkun kolefnisgjalds og ný skattlagning í formi þessa kílómetragjalds komi fram í verðhækkunum á innlendum landbúnaðarafurðum og skekki enn frekar samkeppnishæfnina. Svo er það bara ósanngjarnt og í raun og veru firra að ætla að skattleggja ákveðinn ómöguleika fyrir landbúnaðinn í formi þessa kolefnisgjalds vegna þess að bændur hafa ekki aðrar leiðir. Tæknin er ekki komin. Tæknin er bara því miður ekki komin, þótt þið vilduð, þannig að það er ekki hægt. Þetta er ósanngjarnt og ég biðla til hv. þingmanns að endurskoða hug sinn.

Varðandi það hvort við gætum hugsað okkur að vera á rauða takkanum ef gildistöku frumvarpsins yrði frestað til 1. janúar 27 þá held ég að ég geti sagt það hér í þessari pontu að við myndum skoða hlutina upp á nýtt. Við myndum skoða hlutina upp á nýtt vegna þess að þetta gefur ákveðinn fyrirsjáanleika fyrir fólkið í landinu, fyrir fyrirtækin, fyrir innlenda matvælaframleiðslu, fyrir bændur, þannig að þá erum við komin með eitthvað til að tala saman um.