kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég held að það þurfi ekki að koma neinum á óvart að við séum hér að ræða um skattahækkanir. Þegar þessi hæstv. ríkisstjórn tók við var hún að vísu með nauman meiri hluta atkvæða ef við tökum niðurstöður kosninga. En ég held, virðulegi forseti, að allir stjórnmálaskýrendur sem og kjósendur hafi verið sammála því að þessir stjórnarflokkar hafi verið kosnir vegna þess loforðs að þeir ætluðu ekki að hækka skatta á venjulegt fólk, eins og þeir kölluðu það. Þeir ætluðu ekki að hækka skatta á það fólk. En einhverra hluta vegna erum við alltaf hér í þessum sal að ræða frumvörp frá hæstv. ríkisstjórn sem fela í sér skattahækkanir á venjulegt fólk. Þannig er það. Það má þó segja að það sé „jákvætt“ — og ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir að staðfesta hið augljósa, að hér sé verið að hækka skatta á venjulegt fólk því að það er venjulegt fólk sem keyrir bíla. Skattahækkunin er 3,3 milljarðar að þessu sinni. En ef við tökum alla skattana, það eru vissulega fyrirtæki líka, þá eru þetta nú yfir 30 milljarðar. Ég man ekki eftir að hafa séð svona í stjórnmálum áður, að ríkisstjórn kemur, ný ríkisstjórn, og forystumenn hennar mega ekki opna munninn nema til tvenns, annars vegar til að borða og hins vegar til að segja að síðasta ríkisstjórn hafi verið svo hræðileg. Hún var svo hræðileg. Það er eins og allt hafi verið hér í slíkri eymd og slíku volæði að annað eins hafi aldrei sést. Svo koma málin og hvernig eru þessi mál? Hver er rökstuðningurinn? Alltaf sami rökstuðningurinn: Heyrðu, við erum að gera það sama og síðasta ríkisstjórn, þessi hræðilega ríkisstjórn. Við vorum kosin út af því að hún var svo hræðileg og við ætluðum að gera allt annað. Svo kemur alltaf sama röksemdafærslan: Já, en þetta er það sem síðasta ríkisstjórn var að gera. Einhver hefði nú haldið að þessi ríkisstjórn kæmi hér og segði: Heyrðu, hér erum við með mál eftir mál sem er algjörlega á öndverðum meiði við það sem síðasta ríkisstjórn var að gera. Því er ekki fyrir að fara, virðulegur forseti. Ef einhver gengur á hv. stjórnarliða og spyr: Bíddu, af hverju eruð þið að gera þetta? Þá er alltaf sama svarið: Við erum bara að halda áfram því sem síðasta ríkisstjórn gerði.
Virðulegi forseti. Nú er það reyndar þannig að þetta mál, þ.e. kílómetragjaldið, er búið að vera í umræðu og undirbúningi í mjög langan tíma. En þetta mál hefur bara aldrei komist í gegnum ríkisstjórnarflokkana og þegar það var flutt þá voru það þeir sem nú eru í stjórnarandstöðu, og voru í stjórn þá, þó að þeir væru ekki í stjórn þegar þetta kom fram, sem stöðvuðu það í þinginu. Þegar á hólminn er komið — þó að segja megi að margt mæli með þessu og sýnin hafi á einhverjum punkti verið sú, og kemur fram í kafla í fjármálaáætlun, sem ég man ekki nákvæmlega hvar er, að það ætti að afnema vörugjöldin og menn ætluðu að taka allar tekjur í gegnum kílómetragjald. Þegar kemur að þessu og menn ætla að fara að framkvæma þetta þá sjá menn augljósa annmarka sem gerir það að verkum að minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn — og ég ætla ekki að tala fyrir hönd annarra stjórnarandstöðuflokka en ég veit að þeir eru ekki heldur tilbúnir til að samþykkja þetta mál — hefur ekki verið tilbúinn til að samþykkja þetta mál.
Nú er það oft þannig og ég tel það vera skynsamlegt — þó að auðvitað eigum við alltaf að vera í fremstu röð nema í skattheimtu, ég held að við ættum alls ekki að vera í fremstu röð þar — og gott að geta skoðað reynslu annarra og skoðað hvað hefur gengið vel hjá öðrum og hvað illa. Ég tala nú ekki um þegar við erum að tala um miklar kerfisbreytingar. Í þessu tilfelli er það hins vegar þannig að ef hæstv. ríkisstjórn keyrir þetta í gegnum þingið nú í desember þá verðum við fyrsta þjóðin í heimi, eftir því sem ég veit best, sem fer í þessa vegferð. Nú er það ekki þannig að í öðrum löndum hafi menn ekki verið að skoða þetta. Það er ekki þannig. Menn hafa skoðað þetta um langa hríð en menn hafa haft áhyggjur, af sömu ástæðu og við höfum ekki klárað þetta nú þegar hér á landi, og ekki stigið skrefið til fulls. Og núna, og þetta er svo kaldhæðnislegt og þetta er svo skrýtið, hlustum við á hv. stjórnarliða segja í öðru orðinu hvað síðasta ríkisstjórn hafi verið hræðileg en í framhaldinu að þeir séu að framkvæma það sem síðasta ríkisstjórn hafi verið að gera. En þegar stjórnarliðar eru að gagnrýna hvað síðasta ríkisstjórn gerði illa þá nefna þeir oft eitt mál, og þar hafa þeir rétt fyrir sér, það gerði síðasta ríkisstjórn illa, og það er innviðagjaldið. Það var rétt, það voru mistök. Og hv. stjórnarliðar spyrja: Af hverju talaði síðasta ríkisstjórn ekki við hagaðila? Þetta var allt of skammur fyrirvari. Hagaðilarnir voru ekki tilbúnir og þess vegna fór sem fór. Já, og maður verður að vera sanngjarn, þetta er gagnrýni sem á rétt á sér. Það mál var ekki nægilega vel undirbúið og það hafði ekki jákvæð áhrif í för með sér. Fyrir þá sem ekki þekkja þá sáum við að skemmtiferðaskip, sem einhver í ráðuneytinu taldi að myndu halda áfram að koma þó að innviðagjald legðist á, héldu ekkert áfram að koma. Það er vandinn og það kom mjög illa niður, sérstaklega á fámennum byggðum sem eiga rosalega mikið undir því að skemmtiferðaskip komi. Um þetta eru allir sammála. Þarna voru gerð mistök. Þetta var ekki undirbúið nógu vel. Það var ekki talað við hagaðila, þetta var allt of skammur fyrirvari og þetta fór ekki vel.
Ég get haldið nákvæmlega sömu ræðu um kílómetragjaldið, og hv. stjórnarliðar sem nota þessi rök og hafa haft rétt fyrir sér um innviðagjaldið nota nákvæmlega sömu aðferðafræði með kílómetragjaldið. Þeir trúa því að ef þú setur á gjald, og það á við í þessu tilfelli og er auðvitað skattur, þá hafi það engin áhrif, engin. Af hverju trúa þeir því þegar við sjáum dæmin alls staðar um það að ekki bara gjaldtaka heldur líka fyrirhuguð gjaldtaka, fyrirhugaðar skattahækkanir, hafa áhrif á hegðun fólks. Dæmi: Hæstv. ríkisstjórn fékk þá stórkostlegu hugmynd að ná í 7,5 milljarða í vörugjöldum og læddi því hér inn í þingið að hún ætlaði að stórhækka vörugjöld á bílum fyrir venjulegt fólk — auk þess sem hún ætlaði ekki að hækka skatta, þið munið — á næsta ári. Hvað gerir venjulegt fólk og hvað gera fyrirtækin? Þau kaupa sem aldrei fyrr fyrir áramót. Hví skyldu þau gera það? Jú, það er ódýrara. Það vissu þetta allir nema ríkisstjórnarflokkarnir. Og nú trúa ríkisstjórnarflokkarnir því að þegar þú hækkar gjaldið, sem gerir það að verkum að þú ert að borga meira eftir því sem þú keyrir lengra, hafi það engin áhrif, engin. Ef þeir trúa því að þetta hafi áhrif þá koma þeir og segja: Heyrðu, þetta eru bílaleigurnar. Við erum bara ekkert sérstaklega mikið fyrir það að þessir ferðamenn keyri langt. Við viljum bara hafa þá eins nálægt Keflavíkurflugvelli og mögulegt er. Ef það er einhver verðteygni í þessu, og það er verðteygni í ferðaþjónustunni, það er þannig — þeir sem koma hingað til lands, þetta er bara fólk eins og við. Flestir eru þannig að þeir þurfa að líta í heimilisbókhaldið. Þeir bera saman, við gerum það sjálf þegar við förum til útlanda, verð á hótelunum og ef við tökum bílaleigubíla. Útlendingarnir eru ekkert öðruvísi, þeir gera nákvæmlega það sama. Það sem hæstv. ríkisstjórn er að gera núna er að taka fyrir sérstaklega mikilvægan þátt í ferðaþjónustunni, sem bílaleigurnar eru. Það er ekkert óalgengt að 80% af tekjum hjá bílaleigum komi frá erlendum ferðamönnum. Þetta er miklu hærra hlutfall en annars staðar, miklu hærra. Við erum með hæsta hlutfall í heimi af erlendum ferðamönnum sem viðskiptavinum á bílaleigum. Þá mun þetta fólk líta á þennan reikning, þegar það ber saman hvort það ætli að fara til Íslands, Noregs, Finnlands eða til annarra landa — því að fólk úti í heimi getur farið út um allt. Hvað þýðir það ef dýra landið Ísland — því að Ísland er dýrt land. Það er dýrt fyrir okkur og dýrt fyrir ferðamenn, m.a. vegna þess að velmegun er hér mikil. Það þýðir að samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu minnkar. Í ofanálag, virðulegi forseti, erum við að búa til ótrúlega flókið fyrirkomulag við að innheimta þennan skatt eða þetta gjald. Ökutækjaleigur innan Samtaka ferðaþjónustunnar áætla að beinn kostnaður við innheimtu kílómetragjaldsins geti numið allt að 1,5 milljörðum kr. á ári. Er þetta partur af einföldun regluverks, virðulegur forseti? Er það þannig? Alveg eins og ríkisstjórnin talar um að síðasta ríkisstjórn hafi verið búin til — ég ætla ekkert að koma með samlíkingu þar, hún er bara það hræðilegasta sem komið hefur upp. Í öðru orðinu segir ríkisstjórnin að hún sé alltaf að framfylgja því sem síðasta ríkisstjórn var að gera eða vildi gera. En svo segir hún líka stundum: Við erum að einfalda regluverk. Já, ég hélt að einföldun regluverks gengi út á það að einfalda regluverk þannig að það yrði einfaldara, virðulegur forseti, einfaldara og ódýrara. Nei, nei, hér koma — mér finnst þetta að vísu bara ansi vel af sér vikið ef markmiðið er að flækja regluverkið og gera það dýrt. Það er nú ansi hressilegt að komast upp í þennan kostnað, 1,5 milljarða á ári í flókið regluverk.
Virðulegi forseti. Ég velti því fyrir mér: Er þetta einhvers konar met? Vitum við um eitthvert flækjustig sem hefur náð þessum kostnaði bara svona í einni svipan? Ég man ekki eftir því. Ég held meira að segja að þegar hæstv. ríkisstjórn var að flækja regluverkið með einhverju í tengslum við leigumarkaðinn um daginn — það er náttúrlega verið að flækja regluverkið og það fylgir því mikill kostnaður. Ég held að það hafi ekkert í þetta, 1,5 milljarðar í kostnað við að flækja regluverk, það er vægast sagt vel af sér vikið. Ég vitna hér í efni frá Samtökum ferðaþjónustunnar til að fara aðeins yfir þetta, með leyfi forseta:
„Fjöldi ökutækja í landinu, óháð orkugjafa, var 359.400 talsins í umferð árið 2024, samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands. Það þýðir að árlega, miðað við þennan fjölda ökutækja, mun stjórnsýslan þurfa að gefa út tæplega 4,5 milljónir kröfu- eða greiðsluseðla. Þá eru ótaldar leiðréttingar og bakfærslur sem munu leiða af sér útgáfu nýrra kröfu- eða greiðsluseðla. Nær óhugsandi er að slíkt komi fyrir við eldsneytisdælur.“
Virðulegi forseti. Við erum hér í fjárlögum að kroppa, við sem sitjum í fjárlaganefnd, í milljónir, stundum 10 eða 20 milljónir, stundum 100 milljónir. Það er bara erfitt. En í einni svipan skella menn 1,5 milljörðum kr. á eina atvinnugrein í flókið regluverk. Já, virðulegi forseti, það er ekki hægt að skrökva upp á þessa ríkisstjórn. Og ég verð að segja: Hefði ekki bara verið heiðarlegra að hækka skattana, ef menn vilja endilega, án þess að þurfa að fara í þetta flækjustig? Er þetta ekki alveg nógu erfitt fyrir bílaleigurnar þó að þú setjir ekki 1,5 milljarða í flækjustig ofan á allt saman, þetta er bara svona hugmynd. Það er öllum ljóst að ríkisstjórnin ætlar að svíkja kosningaloforð sín og er búin að því þegar kemur að því að hækka skatta. Það er farið. En þarf hún endilega líka að svíkja loforðið um að ætla að einfalda kerfin? Getur hún ekki haldið sig við eitthvert eitt loforð sem hún var með, svona reynt að hanga í því aðeins lengur? Bara fundið eitt loforð sem allir heyrðu og allir skildu og reynt að hanga í því. Þarf að taka þetta allt í einu? Ef það er markmiðið að taka þetta allt í einu þá er þetta frumvarp til þess gert að ná fram skattahækkunum á venjulegt fólk, skaða samkeppnisstöðu og samkeppnishæfni íslensku þjóðarinnar og flækja regluverk. Þetta heitir í boltanum „hat trick“: Ríkisstjórnin nær að flækja regluverkið, hækka skattana og skaða samkeppnishæfnina.
Virðulegur forseti. Það er nú miklu meira gaman að sjá leikmann í manns eigin liði skora þrennu; það er miklu meira gaman að sjá það en að sjá hæstv. ríkisstjórn ná þessari þrennu. Þessi þrenna þýðir minni samkeppnishæfni, hærri skatta og flókið regluverk. Þessi þrenna er slæm þrenna fyrir íslenska þjóð.