157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[20:07]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu sem rammaði inn svo margt, svo margt sem er að, ekki bara í þessu frumvarpi heldur það sem við erum að eiga við hér alla daga. Við erum að eiga við það að við erum með ríkisstjórn sem er að svíkja öll sín loforð sem er eitt ef þau væru heiðarleg með það en þau koma alltaf fram og tala eins og þau sé ekki að því, tala eins og þau séu að hagræða í rekstri og minnka báknið. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá er báknið að stækka bara með þessu frumvarpi. Ég átta mig ekki á hversu mörg störf en þau eru mörg sem bætast við hjá kerfinu, hinu opinbera kerfi, mörg hundruð milljónir, yfir milljarður í kostnað við að reka kerfi sem er sagt eiga að skila 3,3 milljörðum í auknar skatttekjur. Skatttekjur af almenningi sem var búið að lofa að yrði ekki skattlagður. Í öllum þessum frumvörpum, skattahækkunarfrumvörpum sem við erum að fara að ræða, erum að ræða núna og erum að fara að ræða næstu daga er aldrei tekið tillit til, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði, að hegðunarmynstur breytist eðlilega við svona miklar auknar álögur og áhrifin verða margföld og afleidd áhrif verða margföld og mig langaði aðeins að ræða það. Nú hefur ferðaþjónustan átt undir högg að sækja. Nú liggur fyrir að mörg fyrirtæki muni ekki þola þessa skattheimtu. Hvað þýðir það? Það þýðir aukið atvinnuleysi. Er hv. þingmaður sammála því? Það þýðir aukið atvinnuleysi og ef hann er sammála því, mun það ekki kosta þjóðfélagið meira? Þetta er fyrsta spurningin og ég fæ að halda áfram hér á eftir.