157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[20:11]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Ég get svarað hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Þetta er rétt, það er auðvelt að skattleggja sig út af markaðnum og ég er hér með glænýjar tölur sem staðfesta það sem hann segir. Það liggur ekki bara fyrir að ferðamönnum sem koma til landsins muni fækka. Bókunarstaðan er að verða erfið, sérstaklega hjá bílaleigum. Írar skattlögðu sig út af markaðnum. Það er einhver 9% fækkun, þetta eru glænýjar tölur, 9% fækkun á ferðamönnum. En ekki nóg með það heldur eru okkar helstu samkeppnislönd að bæta við sig, Finnar 15% upp, Norðmenn 14% upp. Og hvað er í gangi? Finnar taka af okkur vetrarferðamennina og Norðmenn taka af okkur sumarferðamennina Þannig að þetta er nákvæmlega rétt, nú erum við búin að snúa þessu við. Þetta hefur áhrif og við erum að skattleggja okkur út af markaðnum. Ég legg því til að þessu frumvarpi verði vísað frá og spyr: Erum við hv. þingmaður sammála því?