157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[20:12]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svarið er að vísu mjög stutt: Já, ég er sammála hv. þingmanni. En ég er mjög hugsi yfir því, af því að ég hef hlustað, og hlustaði á síðasta kjörtímabili, á ræður hv. þingmanna stjórnarliðsins sem þá voru í stjórnarandstöðu. Ég hlustaði eðlilega og tók þátt í kosningabaráttunni. Ég var að hugsa, og hv. þingmaður getur ekki komið aftur upp til að koma með sitt sjónarmið — en áttu kosningaloforðin að vera öfugmæli? Þau sögðu: Við ætlum ekki að hækka skatta. Þá voru þau bara að hugsa: Við erum að plata, við ætlum að hækka skatta. Og svo sögðu þau: Við þurfum að auka samkeppnishæfni íslensks þjóðfélags og það verður ekki gert nema með því að einfalda regluverk og lækka álögur. Þá voru þau að meina: Við erum að plata, við ætlum að flækja regluverkið, við ætlum að sjá til þess að samkeppnishæfnin fari niður.

Virðulegur forseti. Ég velti þessu fyrir mér vegna þess að það kemur mál eftir mál þar sem menn taka algjöra u-beygju. Nú getur maður skemmt sér yfir þessu, það er lykilatriði að vera léttur. En þetta er ekkert léttmeti, þetta eru bara skattahækkanir sem munu hafa skaðleg áhrif á íslenskan efnahag.