kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans erindi. Mig langar að spyrja aðeins út í — ég átti hér orðaskipti fyrir ekki löngu við hv. þm. Pawel Bartoszek þar sem ég leyfði mér að nota hugtakið afturvirkni þegar ég var að fjalla um fyrirhugaða skattlagningu gagnvart bílaleigunum. Bílaleigurnar hafa jú leigt sín ökutæki langt fram í tímann og fari þetta mál í gegn eins og það lítur út þá fá þær, að mati þess sem hér stendur, afturvirka skerðingu á þá samninga. Ég leyfi mér í þessu samhengi að vitna í umsögn frá Bílaleigu Akureyrar þar sem segir hreinlega: „Við höfum þegar verðlagt þjónustu okkar og hafið sölu fyrir næsta sumar. Breytingar með skömmum fyrirvara valda miklum vandræðum og hafa alvarleg áhrif á rekstur og traust viðskiptavina. Tal um fyrirsjáanleika þar sem umrætt gjald hafi þegar verið komið til umræðu fyrr á árinu er marklaust því við getum ekki kynnt eða upplýst viðskiptavini okkar um neitt fyrr en endanleg útfærsla liggur fyrir […].“ Seinna í þessari sömu málsgrein kemur setningin, með leyfi forseta: „Við samþykkjum enga eftiráreikninga.“ Það má vel vera að í orðaskiptum mínum við hv. þm. Pawel Bartoszek hefði ég átt að nota eitthvert annað hugtak. Það breytir því ekki að það er staðfest hér í umsögninni að gjaldtakan er afturvirk. Það er búið að leigja þessi ökutæki út frá þeim forsendum sem þá lágu fyrir. Svo breytum við bara forsendunum með nokkurra daga fyrirvara eins og við höfum ekkert lært af t.a.m. innviðagjaldinu.