kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Þetta er ekkert flókið og þetta er ástæðan fyrir því að atvinnulífið biður um fyrirsjáanleika. Þú getur ekki bara farið til spákonu vikulega og kannað hvað er líklegt að ríkisstjórnin geri á næstunni, hvaða áhrif það hefur á rekstur. Þú getur kannski gert það en ég held að það beri ekki árangur. Og þetta er ekkert flókið. Það er búið að skrifa undir samninginn. Það er búið að panta. Fyrirtæki eru búin að gera sínar áætlanir, m.a. byggt á bókunarstöðu. Síðan breyta menn leikreglunum þannig að afkoma fyrirtækisins versnar sem þessari skattahækkun nemur. En í ofanálag þurfa þau að hækka verð á vörunni vegna þess að það er kominn aukaskattur og jafnvel meira en sem skattahækkuninni nemur, ef þau ætla að reyna að halda afkomunni eins og hún var þegar þau gerðu sínar áætlanir. En það er ekkert einfalt vegna þess að síðan eru þau í verðsamkeppni við aðra þjónustu, eins og kom hér fram í orðaskiptum okkar hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur. Íslensk ferðaþjónusta er í samkeppni, ekki bara hér innan lands heldur við ferðaþjónustu í öðrum löndum. Hv. þingmaður nefndi innviðagjaldið. Maður myndi ætla að innviðagjaldið væri skýrt dæmi um mistök sem við ætluðum að læra af. Nei, þessi ríkisstjórn, sem gagnrýndi innviðagjaldið harðlega, hélt endalausar ræður, skrifaði fjölda greina, var mikið á fundum, þar sem farið var yfir hvað innviðagjaldið væri hræðilegt og hve illa var að því staðið, ákveður bara að taka tékklistann og gera nákvæmlega allt það sem var gert þegar farið var í innviðagjaldið.