kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Ég þakka fyrir svarið. Ég er sammála hv. þingmanni. Það virðist sem svo að það hafi verið farið í uppskriftina og ákveðið: Við skulum gera þetta allt saman aftur, helst alveg eins og jafnvel með styttri fyrirvara. Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann hvort það megi ekki í meginatriðum spyrja hvort það sama gildi ekki bara um heimilisbílinn. Ef við búum til það dæmi að einstaklingur sem keypti nýlegan tengiltvinnbíl, segjum um mitt þetta ár eða jafnvel örlítið fyrir það, gat sá hinn sami reiknað með því að fá með engum fyrirvara slíkt aukagjald á bílinn? Jafnvel þó að hann hafi heyrt eitthvað af umræðu um slíkt, má ætla að slíkur aðili geti tekið ákvarðanir út frá því að þar með sé búið að ákveða það af því að eitthvað er til umfjöllunar í blöðum eða einhvers staðar?
Það er í meginatriðum, herra forseti, það sem mig langar; að tengja þetta aðeins meira við heimilin. Við erum búin að vera dálítið í fyrirtækjunum (Forseti hringir.) og bílaleigunum en við eigum eftir að taka betur fyrir hvernig þetta kemur við heimilin.