157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[20:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og þakka fyrir að færa þetta einmitt yfir á heimilin. Fólkið í landinu taldi sig vera að kjósa flokka — þau sem kusu flokkana og ég held að það hafi ekki verið skynsamlegt hjá þessu góða fólki að hafa gert það — sem sögðu: Við ætlum ekki að hækka skattana á ykkur. Það var sagt, virðulegur forseti, alveg skýrt, að þau ætluðu ekki að hækka skattana á ykkur og þeir nefndu venjulegt fólk.

Virðulegi forseti. Það er bara ekkert venjulegt fólk eftir í landinu ef við erum að miða við aðgerðir þessarar ríkisstjórnar, það er bara enginn venjulegur. Auðvitað eru allir einstakir en ég held að það sé ekki það sem flokkarnir voru að meina því það er venjulegt fólk, virðulegur forseti, sem keyrir bíl, það er bara venjulegt fólk. Það var með miklar væntingar um að skattar á það yrðu ekki hækkaðir. En niðurstaðan er alveg skýr. Ég verð að viðurkenna það, virðulegi forseti, að ég hef verið svolítið upptekinn af atvinnulífinu vegna þess hvernig hæstv. ríkisstjórn nálgast það þótt samúð mín sé svo sannarlega jafn mikil, ef ekki meiri, með heimilunum en það hangir saman. Það er venjulegt fólk sem vinnur hjá fyrirtækjum (Forseti hringir.) og ef fyrirtækin geta ekki staðist samkeppni og geta ekki staðið undir sínum rekstri þá missir venjulegt fólk vinnuna sína.