kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að taka fram að það er ekki rétt sem þingmaðurinn sagði að ég hefði viðurkennt að hér væri um skattahækkun að ræða. Ég sagði einfaldlega að ég viðurkenndi að hér væri um skatt að ræða, svo það sé nú rétt haft eftir. Hv. þingmaður rakti það í ræðu sinni, og vissulega er það rétt, að hans félagar hér í þinginu stöðvuðu þetta mál síðast þegar það kom hér til umræðu. Það er alveg rétt en það verður auðvitað að taka fram að hv. þingmaður er ekki alveg og var ekki alveg í sömu stöðu og t.d. hv. þm. Vilhjálmur Árnason. Hv. þingmaður var í ríkisstjórn. Mig langar því að spyrja í ljósi þeirrar ræðu sem hann hélt hér þar sem ljóst er að honum þykir þetta afskaplega vont mál: Hefur þetta mál batnað eða versnað frá því að hann greiddi atkvæði með því að taka það út úr ríkisstjórn?