kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef hv. þingmaður er að vísa til starfsstjórnarinnar sem var síðasta haust þá vil ég taka fyrst fram að þá voru menn ekki að greiða atkvæði í þeirri stjórn. Það voru harla óvanalegar aðstæður uppi þá. Ég held að það sé óhætt að segja það. Það var ekki starfandi þingmeirihluti og það var kannski ekki alveg tóm til þess að fara yfir fjárlögin þannig og fara að pikka út úr þeim eða bandormunum á þeim tíma. Ekki það að ég hafi verið að kvarta undan því eða halda því fram að það hafi verið flugeldasýningar eða mikil áflog innan hæstv. ríkisstjórnar. Hins vegar lá það fyrir að menn þurftu að klára fjárlög, vildu klára fjárlögin fyrir kosningarnar. Það var alveg ljóst og þegar menn fóru að skoða þetta mál, sem við gerðum ekki djúpt í ríkisstjórninni, þá sáu menn vankantana og það var samstaða innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að stöðva það mál og það var gert. Ég veit ekki alveg hvort spurning hv. þingmanns sé sanngjörn, að segja hvort þetta sé skárra eða verra nú eða þá. Það er ekki í stjórnarskrá að það þurfi að klára þessa skattahækkun. Það er ekki einu sinni í stjórnarskrá að það þurfi að fara yfir í kílómetragjaldið. Það hefur verið lengi í undirbúningi, ef hv. þingmaður hlustaði á ræðu mína þá fór ég yfir það. Menn voru hins vegar alltaf hræddir við að klára það vegna þess að þegar þú ferð og skoðar það þá koma þessir vankantar í ljós sem hafa komið fram í umræðunni. Það var snúið að klára fjárlögin með því að taka út ákveðna þætti en það var samt sem áður gert af því að það var alveg full samstaða um það innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins að gera það og ég studdi það.