kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þekki auðvitað ekki nákvæmlega hvernig umræðurnar voru í ríkisstjórn en það er engu að síður þannig að ríkisstjórnir leggja fram mál í eigin nafni í sameiningu. Ég myndi halda að við þannig aðstæður þar sem er í rauninni bara starfsstjórn sem þarf að klára einhver mál og er augljóslega ekki í góðu færi til þess að koma í gegn umdeildum málum, þá sé kannski frekar tóm til að stoppa hluti sem mönnum finnst ekki vera góð hugmynd. Ég velti því fyrir mér hvort þingmaðurinn telji sig eftir á hafa verið nægilegan sterkan talsmanns þeirra hugsjóna að það eigi ekki að bæta við nýjum sköttum eða flækja skattkerfið, ef hann á þessum tíma beitti sér ekki í ríkisstjórn sem hann sannarlega sat í og hann var ekki bara starfsmaður á plani, hann var umhverfis- og loftslagsráðherra. Þetta var málaflokkur sem sannarlega heyrir undir þessi lög. Það er ekki hægt að segja að þetta hafi verið eitthvað sem kom þessu alls ekki við. Þannig að ég bara velti fyrir mér: Telur þingmaðurinn sig ekki hafa getað staðið betur vörð um þá hugsjón sem hann virðist hafa um að það eigi ekki að fjölga sköttum þegar hann ákvað á sínum tíma að greiða atkvæði með því að þetta mál yrði lagt fram sem stjórnarmál á Alþingi?