157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[20:27]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Æi, með fullri virðingu, þetta er svolítil nauðvörn hjá hv. þingmanni. (PawB: Hjá mér?) Hv. þingmaður er augljóslega algjörlega búinn að gefast upp á því að reyna að færa rök fyrir þessu máli og er núna að reyna að finna einhvern, jú þann sem var síðast stjórnarliði hvort hann geti ekki örugglega verið áfram með því af því að málið var lagt fram áður, eins og ég fór yfir áðan. Ef hv. þingmaður heldur að það sé besti tíminn til þess að eiga við mál þegar það er korter í kosningar og menn eru að klára fjárlög og fara nákvæmlega í það er hv. þingmaður ekki að lesa það rétt. Hv. þingmaður á kannski einhvern tímann eftir að fara í ríkisstjórn og það er ekki þannig að öll þau mál sem fara þar í gegn, jafnvel þó að þú sért með flokka sem eru líkir, séu eins og þú myndir skrifa þau sjálfur.

Ég get alveg farið yfir það sem snýr að orkuskiptunum í tengslum við þetta. Ég geri það nú ekki í stuttu andsvari, ég get kannski gert það í næstu ræðu og ég hvet þá hv. þingmann til að fara í andsvör við mig út af því. En ef menn ætla að nota það að flækja regluverkið sem nemur kostnaði sem ferðaþjónustan telur að sé 1,5 milljarður á ári ofan á skattahækkanirnar þá eru þeir ekki að gera málstaðnum mikinn greiða. Ef menn halda að þetta sé forsenda þess að ná árangri í orkuskiptunum þá er það fullkominn misskilningur. Það eru margar aðrar leiðir til.