kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir ágæta og fróðlega yfirferð, hógværa og málefnalega. Hafi ég réttar upplýsingar þá er hv. þingmaður einnig lögmaður og mig langar aðeins að velta upp með honum hér atriði í frumvarpinu sem ég hef rætt við fleiri hv. þingmenn á fyrri stigum en einhvern veginn ekki fundist ég fá viðhlítandi svör við. Það varðar 18. gr. þar sem verið er að fjalla um mælana. Þar kemur m.a. skýrt fram að eigandi og umráðamaður ökutækis samkvæmt 1. mgr. beri ábyrgð á að akstursmælir, eða eftir atvikum ökuriti eða nafmælir — svo því sé haldið til haga þá gilda aðeins önnur lögmál um það þar sem slíkir mælar fara í löggildingu en það gera hins vegar ekki venjulegir kílómetrateljarar í ökutækjum. Þeir þurfa ekki að fara í löggildingu. Mig langar aðeins svona að velta því upp með hv. þingmanni hvort það sé ekkert á gráu svæði að styðjast við mæla sem ekki eru löggiltir til að innheimta fyrir ríkið á sama tíma og það er viðurkennt við aðrar aðstæður að líkur eru á skekkju í þessum mælum; ef hv. þingmaður yrði til að mynda stöðvaður fyrir of hraðan akstur er sjálfkrafa gert ráð fyrir ákveðinni skekkju, annars vegar í bílnum sjálfum og hins vegar í mælingunni. Ég hefði gaman af því að heyra þetta frá lögfræðilegu hliðinni, hvort þetta sé ekki á dálítið gráu svæði.