kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og ég skal reyna að svara henni eftir bestu getu. Auðvitað er þetta nokkuð skrýtið. Við erum með lög um mælitæki og mælingar, ef ég man rétt, sem fjalla einmitt um þetta; vogir, ýmis mælitæki, þarfnast löggildingar og sæta eftirliti og svo er eitthvað til sem heitir vottaðir vigtarmenn, ef ég man rétt. En auðvitað mætir venjulegur aksturs- eða kílómetramælir í fólksbifreið því ekki og ekki er gert ráð fyrir neinum skekkjumörkum eða öðru slíku í frumvarpinu sjálfu. Löggjafinn hefur auðvitað umtalsvert svigrúm þegar kemur að því að útfæra skattlagninguna og þetta kemur auðvitað bara til af einhvers konar nauðsyn, hygg ég. Það eru þrjú hundruð og eitthvað þúsund ökutæki í landinu og ef ætlunin er að leggja á þetta kílómetragjald þarf einhvern veginn að fá upplýsingar um kílómetrastöðuna.
Það er auðvitað ýmislegt í þessu sem eykur flækjustigið. Sjálfur var ég hissa þegar ég las einmitt 14. gr. um boðun í álestur. Maður má vænta þess, ef maður keyrir kannski eftir atvikum minna eitt árið en þau sem á undan voru, að þá geti ríkisskattstjóri boðað gjaldskyldan aðila í álestur á stöðu akstursmæla hjá faggiltri skoðunarstofu. Mér finnst það reyndar athyglisvert að það er bara ef aðrar ástæður þykja vera fyrir hendi. Það getur í raun og veru bara verið hvað sem er.