157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[20:53]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mér finnst ekki auðveldara að skilja þetta eftir svarið þótt ég viti vel að hv. þingmaður hafi lagt sig allan fram um að útskýra þetta fyrir mér. En ég velti þessu líka fyrir mér á þeirri forsendu að eigandinn sé gerður ábyrgur. Ef það er eitthvað á gráu svæði með löggildingu mælisins þá finnst mér skrýtið að eigandinn sé ábyrgur og mér finnst einnig skrýtið að gera ráð fyrir því að almennur ökutækjaeigandi í landinu hafi yfirleitt forsendur til að meta það hvort það sé skekkja í mælingum eða verða var við að það myndist skekkja á notkunartíma verði einhver minni háttar bilun. Auðvitað sér ökumaðurinn ef mælirinn er allt í einu farinn að sýna 20 eða 30 km meira á klukkustund en hraðatilfinning ökumannsins segir. Ég er kannski að tala um minni skekkjur sem safnast þó í verulega skekkju yfir lengri tíma. Þess vegna vildi ég gjarnan spyrja hvort það sé eðlileg nálgun að gera eigandann ábyrgan sem hefur jafnvel engar forsendur til að meta hvort það sé að myndast skekkja.