kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Þegar stórt er spurt. Auðvitað er þetta bara eitt af þessum atriðum sem þarf að rýna vel. Þetta er um margt sérstakt. Það er auðvitað alveg rétt hjá hv. þingmanni að þarna er eigandi ökutækis gerður ábyrgur fyrir kílómetramæli bifreiðarinnar sem hann hefur engar forsendur til að meta hvort virki rétt. Ég verð nú bara að játa það sjálfur að ég hef nú stundum óttast að breytt dekkjastærð og annað slíkt geti haft áhrif á kílómetrafjöldann en ég óttast kannski frekar að það hafi áhrif á aksturshraðann sjálfan, það er nú önnur saga. En þarna eru t.d. breytur sem geta haft þýðingu og einhverjir aðrir þyrftu að svara fyrir þetta en ég. Það getur skipt máli því að í frumvarpinu er gert ráð fyrir viðurlögum, yfirleitt, sem betur fer, þegar ásetningur eða stórkostlegt hirðuleysi liggur að baki sem veitir þá vonandi borgurunum eitthvert skjól ef til málsóknar kæmi.