kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni kærlega fyrir prýðisræðu. Mig langaði að spyrja út í nokkra hluti. Hann nefndi að bakreikningur yrði ekki sendur á viðskiptavini bílaleiga. Ég get tekið undir það að þegar þú ert búinn að leigja bílinn út þá getur þú ekki sent bakreikning. Myndi hv. þingmaður þá taka undir að það væri í raun og veru bara tvennt í stöðunni, annaðhvort að taka tjónið á sig eða að þú getur hreinlega ekki tekið tjónið á þig og það verður bara tap af leigu bifreiðarinnar; þá er betra að láta hana standa og þá verðurðu að rifta samningnum. Eru einhverjir aðrir möguleikar í stöðunni sem hv. þingmaður sér? Ég held ekki. Ég met það því sem svo að þetta sé alger grunnforsenda fyrir því að við verðum alla vega að fresta gildistímanum til þess að það sé smá fyrirsjáanleiki. Það er kannski aðalspurningin hvort hv. þingmaður sjái einhverja aðra lausn en að fresta gildistímanum til að fyrirtækin lendi ekki í þessari stöðu.
Mig langar svo til að minnast á að hv. þingmaður segir að það séu 31.000 manns sem starfa í ferðaþjónustu. Þetta er auðvitað gríðarlega stór grein og hliðaráhrifin eru víða. Það er eiginlega alveg sama hvaða starfsgrein þú tekur, ef þú ert með meira en 2 milljónir af ferðamönnum sem koma árlega þá hefur það áhrif á svo margt. Þeir sem tæma ruslið tæma meira rusl ef það eru fleiri ferðamenn. Þeir sem vinna í matvörubúðum, það þarf fleiri starfsmenn. Þetta fer um allt kerfið. Því spyr ég: Er ekki hætta á því að samdrátturinn verði í miklu fleiri greinum en bara í ferðaþjónustunni, að mati hv. þingmanns?