kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og ég held að þetta sé rétt. Það er engin einföld leið fyrir þessi fyrirtæki og þá er ég sérstaklega að tala um ökutækjaleigurnar að þurfa að endurheimta þetta gjald, þennan skatt, af viðskiptavinum sínum þegar búið er að semja um leiguna sjálfa, eftir atvikum jafnvel búið að greiða fyrir hana. Við þekkjum þetta nú mörg þegar við erum að leigja okkur, hvort heldur sem er bifreiðar eða einfaldlega hótelherbergi. Þú greiðir ákveðið verð og ef það er eitthvert gistináttagjald eða eitthvað slíkt þá er það hreinlega tekið fram í leiguskilmálunum. En þetta er auðvitað nýmæli í íslenskri löggjöf sem á að taka gildi eftir 13 eða 14 vinnudaga; það er alveg ótrúlegt og ég á eftir að heyra réttlætingu stjórnarliða á þessu fyrirkomulagi. Ríkisstjórninni liggur lífið á hvað þetta varðar. Varðandi áhrifin á ferðaþjónustuna þá upplifði ég það því miður og óttaðist í byrjun þessa hausts að næst stæði til að sækja aukna fjármuni frá ferðaþjónustunni út af því að hún ætti einfaldlega fyrir því, það væri mat ríkisstjórnarinnar. Upptakturinn í haust var svolítið á þá leið en öll þessi áföll hafa vonandi heldur dregið úr þeirri ásókn. En þetta er auðvitað það sem ég óttast, ferðamenn geta komið og farið og við þekkjum það sjálf að vinsælir ferðamannastaðir geta þótt mjög hallærislegir í einni svipan og menn geta hæglega skattlagt sig út úr allri samkeppni.