157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:00]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svarið. Í ljósi þess að þetta frumvarp hefur gríðarleg áhrif víða, þetta hefur auðvitað áhrif á alla bifreiðaeigendur, langar mig að fá að lesa örstutt upp úr umsögn Viðskiptaráðs, smákafla, áður en ég kem að spurningunni. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Rétt er að taka fram að hvort tveggja kílómetragjald og kolefnisgjald eru skattar, sem eiga samkvæmt frumvarpinu að taka miklum og reglulegum breytingum, út frá fjölmörgum breytum. Það er í andstöðu við grundvallarhugsjón þá sem liggur að baki góðum skattkerfum sem eiga að fela í sér skýra, einfalda, gagnsæja, skilvirka og fyrirsjáanlega skattheimtu.“

Þetta gerir það augljóslega ekki og því velti ég því fyrir mér hvort löggjafinn geti að mati hv. þingmanns leyft sér að fara gegn svona grundvallarhugsjón í skýrri skattheimtu.