kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég kem hér enn og aftur inn í andsvaraveislu þar sem fyrir eru tveir andstæðingar frumvarpsins. Ég velti því aðeins upp í umræðu hvort það sé endilega heppilegt að við fækkum þeim mínútum sem andstæð sjónarmið takast á en látum það nú vera.
Mig langar aðeins að velta fyrir mér einni spurningu með hv. þingmanni því að honum er tíðrætt um frestinn og hvað fyrirvarinn sé skammur. Ég vil bara minna á að það eru auðvitað í gildi lög um kílómetragjald nú þegar fyrir rafmagns- og tengiltvinnbíla. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður þekkir þá sögu en þau voru lögð fram á þingi 17. nóvember 2023 og tóku gildi 16. desember 2023, mánuði síðar. Það var sem sagt mánuður gefinn fyrir alla þinglega meðferð málsins. Ég er ekki að reyna að draga fram: Sjáðu hvað hin voru vond eða eitthvað svoleiðis. Ég er bara að velta fyrir mér: Tekur þingmaðurinn undir að sú málsmeðferð hafi líka verið allt of hröð og allt of geyst og það hefði verið betra ef gildistökunni þar hefði verið frestað eða er eitthvað ólíkt í þessum tveimur málum sem gerir það að verkum að gildistakan var réttlætanleg með svo skömmum fyrirvara þá en er það að hans mati ekki núna? Það er ein spurning sem ég hef. Ég hef að einhverju leyti samúð með þeim sjónarmiðum sem þingmaðurinn veltir hér upp. Þegar málið var afgreitt út úr efnahags- og viðskiptanefnd um vorið, einhvern tímann í maí minnir mig, þá lagði ég til sem framsögumaður málsins að gildistakan yrði í október þannig að það gæfust nokkrir mánuðir til að undirbúa málið með þeim rökum sem hér eru notuð. Nú erum við hins vegar komin í þá stöðu að afgreiðsla þessara mála er tengd fjárlögum. Það skýrir að einhverju leyti tímalínuna, svo hún sé útskýrð. Mig langar aðeins að fá þingmanninn til að bregðast við þessu.
Svo langar mig aðeins að spyrja, ég skildi ekki alveg rökin hans með gjaldbilunum: Vill hann fjölga þeim neðar eða telur hann að það sé ekki nægileg neyslustýring í frumvarpinu eins og hún er? Það er ekki réttlætanlegt út frá þeim tölum sem við horfum á að búa til gjaldbil neðst, ef við værum að gera það þá værum við að segja að okkur langaði að fólk myndi keyra um á minni bílum án þess að útreikningar og ytri áhrif réttlæti það.