kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og skal reyna að gera mitt besta til að svara henni. Þó að ég hafi ekki tekið þátt í þeirri málsmeðferð sem hann vék að, álagningu upphaflegs kílómetragjalds, þá er ég almennt þeirrar skoðunar að öll lagasetning eigi að fara fram að vel ígrunduðu máli og með góðum fyrirvara hvað gildistökuna varðar. Það er svar númer eitt. Númer tvö: Já, það er munur á þessu tvennu. Þá er ég aðallega að nefna það að hér erum við að tala um öll ökutæki. Hin álagningin laut að rafmagnsbílum og tengiltvinnbílum sem eru minni þáttur í rekstri lögaðilanna sem ég var að vísa til, ökutækjaleiganna, sem reiða sig að miklu leyti á þessa dísil- og bensínbíla, eða hvað þeir heita nú, vegna þess að viðskiptavinir þeirra vilja slíkan bíl. Sá er munurinn. Þetta er stærra mál fyrir ökutækjaleigurnar en hitt. Hitt málið hitti kannski frekar fyrir heimilin í landinu, ekki fyrirtæki sem eru að reiða sig á útleigu bifreiða og hafa gert það eitthvað fram í tímann.
Hvert var hitt atriðið? (Gripið fram í.) Já, einmitt, takk fyrir að nefna það. Punkturinn með því var kannski frekar að mér finnst vera hentistefna í rökstuðningi frumvarpsins. Þarna var sem sagt litið til þess hvert slit á vegum er og þess vegna eru gjaldbilin útskýrð með þessum hætti en svo á öðrum stöðum í frumvarpinu, eftir því sem hentar hverju sinni, er litið til umhverfissjónarmiða eða tekjufalls af bensín- og dísilbifreiðum eða hvað það nú er.