157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:07]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langar að velta einu upp. Ég hef heyrt það frá öðrum að ástæðan fyrir því að það sé kannski verra að gera þetta svona sé að við erum með fullt af lögaðilum sem þetta gildir um. Ég hef aðeins verið að draga í efa þessa nálgun. Ég velti fyrir mér af hverju Sjálfstæðisflokkurinn er svolítið alltaf á þessari vegferð; að það sé allt í lagi að demba einhverjum sköttum á heimilin með skömmum fyrirvara, það sé ekkert mál, en þegar það kemur að einhverjum stórum fyrirtækjum sem eru með sín hagsmunasamtök sem geta rekið mál hérna í þinginu og lagt hart að þingmönnum að koma til móts við þeirra sjónarmið, þá einhvern veginn gildir eitthvað annað. Mér finnst þetta ekkert vera tvennt ólíkt og mér finnst að við eigum líka að hugsa um fyrirsjáanleika í bókhaldi heimilanna en ekki bara fyrirsjáanleika í bókhaldi lögaðila. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)