kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta innlegg og verð þó að halda því til haga að ég svaraði honum í tveimur liðum. Sá fyrri er að auðvitað á lagasetning að hafa hæfilegan fyrirvara, þannig að því sé haldið til haga. Svo sagði ég náttúrlega hvergi og það var ekkert í mínum málflutningi sem gaf hv. þingmanni tilefni til að ætla að mér finnist einhvern veginn allt í lagi að demba sköttum á heimilin í landinu með engum fyrirvara, bara nákvæmlega ekki neitt. Hv. þingmaður spurði mig hins vegar hvort það væri einhver munur sem gæti réttlætt þessa ólíku meðferð eða skoðun og ég benti honum á þetta atriði sem hefur svo sem komið fram fyrr í umræðunni og er alveg eðlilegt að halda til haga án þess að það þurfi að ganga svo langt að ætla þeim sem hér talar einhverjar aðrar skoðanir.