157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:10]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér nefndarálit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki. Sömuleiðis er hér til umfjöllunar nefndarálit frá 1. minni hluta og einnig frá 2. minni hluta. Það hefur verið nokkuð áhugavert að fylgjast með umræðunni hér í dag og í kvöld. Þetta mál á sér þó nokkuð langan aðdraganda, eins og komið hefur fram hjá hv. þingmönnum sem hafa tekið hér til máls. Fyrst vil ég segja, frú forseti, til að taka af allan vafa, að þetta mál er töluvert skylt okkur Framsóknarmönnum. Það verður bara að segjast eins og er. En það er aftur á móti líka þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt að horfa í baksýnisspegilinn og skoða það sem við höfum gert, hvernig við höfum unnið í þessu máli, og bera það saman við gildistöku á lögum sem sneru að innviðagjaldi og snertu skemmtiferðaskipin sömuleiðis. Ég held að það sé okkur öllum umhugsunarefni. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur að velta því fyrir okkur hvernig við nálgumst lagasetningu sem snýr að því að leggja gjöld á viðkvæmar greinar, eins og ferðaþjónustuna þegar kemur að innviðagjaldinu. Hér erum við að fjalla um kílómetragjald sem snertir alla íbúa þessa lands og einnig þá sem sækja okkur heim. Það þarf að vera fyrirsjáanleiki hvað varðar gildistöku laga sem snerta sérstaklega þau lög sem hér eru til umfjöllunar.

Ég er sammála því grunnstefi að það sé eðlilegt að þeir sem nota vegina borgi fyrir það og að gjaldið renni þá til vegamála. Þegar við fjölluðum hér um veiðigjald á síðasta þingi þá átti það nú allt saman að renna til baka í byggðirnar, til uppbyggingar á samgöngumannvirkjum. Nýverið höfum við séð framan í drög að samgönguáætlun og þar fer ekki saman hljóð og mynd hvað það varðar að peningarnir skili sér aftur heim í hérað. Það er áhugavert að velta því fyrir sér í þessu samhengi að í þeirri umræðu sem sneri að veiðigjaldi fjölluðum við um aukaskattheimtu upp á 7,5 milljarða kr. og það átti allt að renna í vegaframkvæmdir á landsbyggðinni. Á næstu dögum förum við væntanlega að fjalla um breytingu á vörugjöldum og þar er sömuleiðis verið að velta fyrir sér 7,5 milljörðum. Síðan eru það rétt rúmir 3 milljarðar í þessu frumvarpi sem einnig eiga að fara til vegaframkvæmda. Þetta eru rúmir 18 milljarðar sem ég er búinn að telja hérna saman. Miðað við það sem við sjáum í samgönguáætlun þá ber hún þess ekki merki að þetta sé endilega að fara að skila sér beint til uppbyggingar á samgöngumannvirkjum, ég held að það sé alveg óhætt að segja það.

Aftur á móti er það þannig að í breyttu umhverfi erum við í grunninn með ágætiskerfi í dag. Við erum þegar farin að rukka gjald af rafmagnsbílum og þessum tvinnbílum — með leyfi forseta: „plug in hybrid“, ég biðst afsökunar á að nota ensku. Það kerfi hefur svo sem gengið ágætlega upp. Seinna í ræðu minni kem ég inn á tillögur um það hvernig við sjáum fyrir okkur framtíðargjaldheimtu af ökutækjum hér á landi og hvernig við getum nálgast það. Vissulega er það þannig að í því frumvarpi sem hér um ræðir erum við að horfa til þess að gjald sem er á bensíni og olíu falli burt og verði greitt til baka með öðrum hætti. Þar af leiðandi á verð á dælu að lækka, en við höfum það svo sem ekkert í hendi okkar að olíufélögin fylgi því eftir. Það er ekkert sem segir að verðið sígi ekki bara í rólegheitum til baka aftur. Vissulega eru þetta þó töluverðar upphæðir sem lítrinn á að lækka um og það er farið ágætlega yfir það, bæði í nefndaráliti meiri hlutans og í frumvarpinu sjálfu, hvaða áhrif þetta hefur.

Samhliða þessu erum við að fjalla um hækkun á kolefnisgjaldi, það er niðurfelling á bensín- og olíugjaldi sömuleiðis. Markmið frumvarpsins snýr að því að skjóta styrkari stoðum undir tekjuöflun ríkissjóðs og að sjálfsögðu tengist þetta sömuleiðis loftslagsmálum, það er þá hluti af því sem snýr að hækkun kolefnisgjaldsins. Ég sit ekki í hv. efnahags- og viðskiptanefnd en er enn að kynna mér frumvarpið og þær umsagnir sem hafa borist. Þær eru margar mjög efnismiklar og góðar. Ég ætla, með leyfi forseta, að grípa niður í nokkrar þeirra í minni ræðu og vitna til þeirra. Það barst mjög áhugaverð og góð umsögn frá Bílgreinasambandinu þar sem farið er ágætlega yfir þetta og sömuleiðis þær hækkanir og þær breytingar sem verða þegar kílómetragjaldið tekur við samkvæmt þessu frumvarpi. Bílgreinasambandið bendir á að hækkanirnar eða fjárhæðirnar, miðað við það sem er í dag, séu umfram verðbólgu; það sé því verið að taka meira en það sem verið er að rukka í dag. En þegar svona kerfisbreyting gengur yfir þurfum við að horfa á heimilin og þá sem eru í atvinnurekstri en það er töluverður munur á þar. Þeir sem eru í atvinnurekstri í dag og eru að nýta bensín og olíu geta innskattað til baka, en það er ekki hægt varðandi kílómetragjaldið. Það er því alveg ljóst að rekstrarkostnaður fyrirtækja hækkar að jafnaði meira en rekstrarkostnaður heimilanna. En það hefur líka verið bent á að aðstaða fólks á þessu landi er ansi misjöfn. Það kemur fram í frumvarpinu að fólk úti á landi sé á öðrum bílakosti en þekkist í þéttbýli. Það má vel vera að hægt sé að færa einhver rök fyrir því en vissulega eru aðstæður fólks í dreifbýli allt aðrar en þeirra sem búa í þéttbýli. Menn hafa ekki sömu tækifæri til að nýta sér samgöngukerfi sem í boði eru og stundum er það bara ein leið sem menn geta nýtt sér og það er heimilisbíllinn; það eru ekki almenningssamgöngur og þú gengur ekki í vinnu. Það kemur ágætlega fram í umsögn frá Samtökum sveitarfélaga á Norðausturlandi. Þau benda á að það þurfi að velta því fyrir sér, enn frekar en gert er í því nefndaráliti sem hér er til umfjöllunar, hvort hægt sé að hafa einhverjar ívilnanir eða afslætti eða svoleiðis sem snýr að þessu nýja kílómetragjaldi. Það er nefnilega alveg ljóst að það kemur til með að leggjast hlutfallslega þyngra á atvinnugreinar sem reiða sig t.d. á mjög langar flutningsleiðir. Það á við um sjávarútveg og landbúnað. Megnið af öllu byggingarefni kemur á land hér í Reykjavík eða í nágrannasveitarfélögum og er síðan keyrt út á land.

Ég veit ekki hversu djúpt ég á að fara í það að fjalla um ferðaþjónustuna í þessari ræðu. Ég ætla frekar að halda mig við það að fjalla um atvinnulífið og fólkið sem býr úti á landi. Það hefur verið varað við því, og það er þvert á allar umsagnir sem komu utan af landi í þessu máli, að þetta komi til með að hækka vöruverð á landsbyggðinni. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðausturlandi beinir því til Alþingis að reyna að finna leið til að milda höggið vegna þess að við viljum að atvinnulíf úti á landi geti staðið nokkuð jafnfætis í samkeppni við atvinnulíf hér á suðvesturhorninu. Ef við erum ekki með þær ívilnanir sem þeir leggja til — og ég hef ekki fundið, á minni yfirferð í þessu máli, hvort gerðar hafi verið einhverjar greiningar sem snúa að áhrifum gjaldsins á atvinnulíf og á verðlag eða hvort byggðaþróun hafi verið metin, ég hef ekki séð það. Það getur vel verið að það hafi verið gert og mér verður þá væntanlega bent á það ef þær greiningar liggja fyrir, en ég hef ekki rekið augun í þær greiningar. Ég vil benda á það að íbúar á Norðurlandi eystra og í Norðausturkjördæmi — að það er mjög algengt að menn þurfi að keyra mjög langar vegalengdir til að sækja vinnu. Sumir eru meira að segja að fara yfir fjallvegi og við þekkjum þá umræðu sem tengist samgönguáætluninni. En í þessu samhengi, frú forseti, væri ágætt fyrir okkur að reyna að sameinast um það hér í þessum þingsal að horfa til þess hvernig við getum dregið úr áhrifunum. Þurfum við að ganga aðeins hægar? Eigum við að fresta gildistöku o.s.frv.? Í áliti bæði 1. og 2. minni hluta er lagt til að málinu verði vísað til baka. Það má vel vera að það sé ágætisleið en ég hef lagt upp með það í þessari umræðu að ég sé að mörgu leyti hlynntur þeirri hugmyndafræði sem snýr að kílómetragjaldinu, en ég telji að við þurfum að vanda okkur betur. Við þurfum að horfa til þess hver áhrifin verða á bílaleigur og hver áhrifin verða á ferðaþjónustuna. Við höfum öll, allir þingmenn, fengið skilaboð frá bílaleigum, t.d. frá Bílaleigu Akureyrar, Höldi, sem sendi inn góða umsögn en hún er ein stærsta bílaleiga landsins. Við erum einnig með mjög ítarlega og góða umsögn frá Samtökum ferðaþjónustunnar sem leggja til leiðir og ég mun fara yfir þær leiðir í seinni ræðu minni.

Ég ætla, frú forseti, aðeins að fara yfir hugsanleg áhrif kílómetragjaldsins og skorts á aðlögunartíma. Í umsögn frá Bílaleigu Akureyrar, Höldi, er talað um að mjög mikilvægt sé að fyrirsjáanleiki sé til staðar. Eins og ég kom inn á í upphafi þá finnst mér mjög mikilvægt að við sem höfum komið að lagasetningu — ég nefni innviðagjaldið í þessu samhengi sem fékk réttmæta gagnrýni — lærum af þeirri lagasetningu vegna þess að hún hafði verulega slæm áhrif og neikvæð áhrif á mjög mörg byggðarlög hringinn í kringum landið. Ég óttast það, frú forseti, að hér séum við því miður að fara sömu leið. Við erum að flýta okkur of mikið að mínu viti og við verðum að hægja á. Ég geri mér líka grein fyrir því að það er reiknað með fjármunum í tengslum við fjárlög, inn í þann stóra pakka sem þar er. Sömuleiðis er svigrúmið ekki fyrir hendi eins og fjárlög líta út í dag, til þess að þau standist stöðugleikaregluna. Við verðum þá að velta því upp hvort við þurfum ekki að hækka aðhaldskröfu á málefnasviðum um 1%, þannig að það verði 2% hagræðingarkrafa á hvert málefnasvið í staðinn fyrir 1%. Þetta er svona hugmynd inn í þessa umræðu. Ef sú leið verður farin sem hér er boðuð, og gildistaka verður 1. janúar 2026, þá sjáum við fram á það, það er klárt mál, að það verði gríðarlegt högg fyrir bílaleigurnar og ferðaþjónustuna. Að megninu til er búið að selja allar ferðir á næsta ári á vissu gjaldi og því verður ekki breytt. Sú hækkun sem hér er lögð til, eða breyting á innheimtu á gjöldum, kemur mjög illa við ferðaþjónustuna og sérstaklega bílaleigurnar. Í umsögn sinni bendir Bílaleiga Akureyrar á að það væri væntanlega mun hagfelldara og fyrirsjáanlegra að halda sig við núverandi fyrirkomulag og velta því fyrir sér hvort það kerfi sem við erum með í dag, sem snýr þá að innheimtu af hreinorkubílum og tengiltvinnbílum — við þekkjum það kerfi og ættum þá kannski bara að leyfa okkur að fasa hina bílana út svona í rólegheitum. Það má vel vera að það sé skoðunarvert. En ég ítreka það samt, frú forseti, að ég held að við þurfum öll að velta því fyrir okkur hvernig við ætlum að fjármagna samgöngukerfi næstu ára. Sú leið sem boðuð er hér er að mörgu leyti ágæt en við þurfum að endurskoða aðferðafræðina og hvernig við ætlum að taka málið til kostanna sömuleiðis. En fyrst og fremst snýr þetta að gildistöku og fyrirsjáanleika.