157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:30]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans góðu yfirferð hér. Hún var yfirgripsmikil og var komið við á mörgum sviðum. Það er alveg augljóst að þetta mál er gallað og það er alveg augljóst af umsögnum að dæma, eins og hv. þingmaður kom inn á, að það er ekki verið að taka tillit til þeirra umsagna sem hafa verið sendar inn. Það er eiginlega alveg sorglegt að hæstv. ríkisstjórn og hv. meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar virðist ekki horfast í augu við eða hlusta á þau varnaðarorð sem höfð eru uppi varðandi t.d. efnahagsleg áhrif á verðbólgu, hækkun á flutningskostnaði og þar af leiðandi hækkun á kostnaði á vörum og aðföngum, matvöru og annað sem mun hafa áhrif á verðbólgu og fleira.

Mig langaði í fyrstu spurningu að spyrja hv. þingmann af því að hann, líkt og sá sem hér stendur, er þingmaður Norðausturkjördæmis, að í umsögnum hjá bílaleigunum kemur skýrt fram að hækkunin er mjög mikil og hún er ekki síst hlutfallslega hærri yfir vetrartímann sem þýðir í rauninni, og við getum alveg leitt líkur að því, að ferðamenn munu keyra skemur. Þeir munu leigja í færri daga. Þeir munu keyra styttri vegalengdir af því að bílaleigubílarnir eru búnir að hækka í verði. Við vitum að þetta mun hafa áhrif á ferðaþjónustu í okkar kjördæmi en mig langar líka að spyrja hv. þingmann hvort þetta muni ekki líka hafa áhrif á Norðvesturkjördæmi, Vestfirði og aðra staði þar sem eru lengri vegalengdir og af hverju hv. meiri hluti er ekki að horfa til þessara varnaðarorða.