157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:32]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Ég held að það liggi nú alveg í augum uppi, hvort sem ferðamenn keyri á Vestfirði eða lendi á Egilsstöðum og keyri síðan á Hornafjörð eða þvælist um fyrir norðan, að það kemur mjög skýrt fram, bæði frá bílaleigunum og sömuleiðis frá Samtökum ferðaþjónustunnar, að það er varað við þessari breytingu. Það er sömuleiðis komið inn á það í umsögnum að sú hækkun sem hugsanlega kemur til með að leggjast ofan á ferðir hingað til lands muni hafa áhrif á dreifingu ferðamanna. Ég held að við deilum ekki um það. Hv. þingmaður spyr hvers vegna hæstv. ríkisstjórn og hv. meiri hluti hafi ekki velt þessu fyrir sér. Það verða nú aðrir að svara fyrir það. Það er ekki mitt að svara því hvað aðrir eru að hugsa. Aftur á móti er það þannig að í umfjöllun og í þeim umsögnum sem hafa borist um málið þá eru þær flestar á þann veg að jú, menn velta því fyrir sér: Einhvern veginn þurfum við að koma upp ákveðnu kerfi til að fjármagna samgöngur. Er þetta sú leið sem á að fara? Sumir segja já, aðrir segja nei, en ég held að allir séu samt sammála um að við þurfum að hafa eitthvert ákveðið kerfi. Jú, við erum með ákveðið kerfi í dag en það er aftur á móti tvöfalt. Það gengur held ég bara nokkuð þokkalega hvað það varðar. Mér finnst sömuleiðis gott það sem kemur fram í umsögn Bílaleigu Akureyrar hvað það varðar að halda okkur bara við það kerfi sem er í dag.