157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:35]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er nefnilega þannig að 60% ferðamanna taka bílaleigubíl, 60% ferðamanna. Ég þekki það bara frá Austurlandi og Austfjörðum að þar treysta ferðaþjónustufyrirtæki, oft lítil ferðaþjónustufyrirtæki sem eru að reka lítil hótel eða gistiheimili, gríðarlega mikið á bílaleiguumferð. Það hefur alltaf verið áskorun hjá okkur og markmið varðandi ferðaþjónustuna að ná að dreifa ferðamönnunum, búa til meiri vetrarumferð. Ef lesnar eru umsagnir frá bílaleigufyrirtækjunum, Samtökum ferðaþjónustunnar og fleirum er ekki verið að ná því markmiði. Það er verið að vinna gegn því markmiði. Það er verið að vinna gegn því að dreifa ferðamönnum jafnt yfir árið. Það er verið að vinna gegn því markmiði að dreifa ferðamönnum um landið. Það er bara verið að vinna gegn þessum markmiðum með því að leggja á kílómetragjöld. Það kemur mjög skýrt fram í þeim umsögnum sem hafa verið sendar inn að ferðaþjónustan á undir högg að sækja núna út af sköttum, gjöldum og kostnaði. Það er dýrt að koma til Íslands og með hækkuðum vörugjöldum á ökutæki, með kílómetragjöldum, með ýmiss konar ferðamannasköttum sem eru boðaðir, listinn ætlar líklega aldrei að taka enda hjá hæstv. ríkisstjórn hvað hún getur skattlagt íbúa þessa lands mikið. Í tengslum við það langaði mig að spyrja hv. þm. Þórarin Inga Pétursson hvort hann sé ekki sammála því að allar þessar hækkanir muni geta haft mjög skaðleg áhrif á samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu, horft fram til næsta árs og næstu ára.