157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:37]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að það sé alveg ljóst að ef þú skattleggur of mikið, og það hefur hingað til verið skoðun mín og ég veit að hv. þingmaður og ég deilum þeirri skoðun, ef gjöldin verða of há og við þurfum væntanlega að verðleggja okkur út af markaði, þá getur það vissulega haft neikvæð áhrif á atvinnugreinina. En sömuleiðis verðum við að hafa í huga varðandi þá ferðamenn sem sækja okkur heim, til að gæta allrar sanngirni í þessari umræðu, að það sé fyrirsjáanleiki fyrir hendi, að sá aðili sem kaupir vöruna viti að hverju hann gengur. Það er fyrst og fremst rauði þráðurinn í gegnum allar umsagnir sem snúa að ferðaþjónustu, hvort sem það er frá bílaleigum eða Samtökum ferðaþjónustunnar sem snýr að því að þegar verið er að fikta í hækkun á gjöldum, að það sé fyrirsjáanleiki í því hvernig það er gert. Þetta er nákvæmlega það sama og varðandi innviðagjaldið sem var sett á skemmtiferðaskipin. Ef fyrirsjáanleikinn er ekki fyrir hendi þá fáum við það bara tvöfalt í hausinn til baka. Það er það sem ég hef verið að leggja áherslu á í minni ræðu og þeim samtölum sem ég hef átt um þetta mál, að velta því fyrir sér hvort við getum ekki farið þá leið að endurskoða það sem snýr að gildistökunni, að fresta henni alla vega um ár þannig að þetta verði 1. janúar 2027 í staðinn fyrir 1. janúar 2026.