kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka þingmanninum fyrir ágætisræðu og ég skil nú vanda Framsóknarmanna að einhverju leyti. Þeir finna sig einhvern veginn knúna til að tala gegn þessu máli sem þeir lögðu fram og studdu svo einarðlega á síðustu þingum. Um það er kannski fyrsta spurningin, af því að nú er efnahags- og viðskiptanefnd búin að fá þetta tvisvar inn til sín og ég vil meina að í meðförum nefndarinnar höfum við lagað málið mjög mikið og gert mjög mikið fyrir bændur, t.d. komið verulega til móts við ferðaþjónustuna og ökutækjaleigurnar. Það sem ég skil ekki í málflutningi Framsóknarmanna, af því að nú tel ég að málið hafi styrkst og orðið betra, er hvað varð til þess að þeir sneru af leið. Þeir töluðu fyrir þessu máli og þetta er mál sem formaður flokksins lagði fram og ég bara skil ekki hvenær það gerðist að Framsóknarmenn sneru af leið í þessu máli. Ég tel í grunninn að þetta sé gott mál, þannig að það væri ágætt að fá svar við því.
Svo er það eitt sem ég heyrði líka í málflutningi hér í dag hjá hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni, þetta er greinilega eitthvað sem er rætt í þingflokksherbergi Framsóknarmanna, og það eru þessar tekjur og gjöld af umferð. Þetta fæst bara ekki til að stemma hjá mér. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2026 er gert ráð fyrir því að 72,9 milljarðar fari til samgangna. Þeir voru 63 á þessu ári þannig að hér er bæting um 10 milljarða, mjög gott. Nú erum við auðvitað hætt með markaða tekjustofna af samgöngum en samkvæmt frumvarpinu erum við að gera ráð fyrir að bifreiðagjald, kílómetragjöld og vörugjöld skili 68,7 milljörðum. Við erum að setja miklu meira í samgöngurnar heldur en tekjurnar standa fyrir þannig að ég skil ekki þennan málflutning. Ef þingmaðurinn gæti vinsamlega leitt mig aðeins betur í ljós um það hvernig þetta reikningsdæmi gengur upp sem hér hefur verið rætt í stólnum í dag þá held ég að það myndi hjálpa umræðunni og mér að skilja, af því að við erum kannski ekki að vinna með sömu tölurnar.