kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar og ætla að byrja á seinni spurningunni. Stóri munurinn þarna á milli er að höfuðborgarsvæðið kemur inn, sem var ekki í fyrri tölum. Það er alla vega minn skilningur á þessum mismun í þeim tölum sem hér er rætt um.
Síðan spyr hv. þingmaður um sinnaskipti Framsóknarflokksins í málinu. Ég veit ekki betur en að ég hafi komið inn á það alla vega þrisvar sinnum í þessu máli að hugmyndafræðin sem slík um kílómetragjald og hvernig við förum að því að fjármagna samgönguverkefni framtíðarinnar og viðhald vega held ég að sé ágæt. En eitt af því sem stendur mjög í okkur Framsóknarmönnum, sem ég skil engan veginn að hv. meiri hluti í efnahags- og viðskiptanefnd hafi ekki getað horft til, snýr að tengivögnum. Í upphafi var fjallað um að þeir borguðu 70%. Í frumvarpinu er farið inn á það að tengivagnar byrji með 60% árið 2026, fari í 80% 2027 og síðan 100% 2028. Við lögðum upp með það á fyrri stigum, til að reyna að draga úr þeirri hækkun sem gæti orðið hjá tengivögnum við þessa breytingu á kílómetragjaldi, að halda gjaldinu í þessum 70% af því sem upp var lagt með. Það munar ansi miklu þegar þú ert að fjalla um gjaldið, þótt vissulega sé hérna afsláttur til að byrja með, en í staðinn að halda sig bara við afsláttinn alla leið út í gegn.