kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir upplýsingarnar og sömuleiðis spurningarnar. Það var nú það sem ég leitaði eftir í minni ræðu og ég kom sömuleiðis skýrt inn á að ég hefði ekki séð þessar greiningar, en ég kem að sjálfsögðu til með að skoða þær. Hv. þingmaður velti því fyrir sér og spyr þann sem hér stendur hvort það sé ekki skynsamlegt að við tökum vel á móti ferðamönnum og bjóðum upp á góðar samgöngur. Það deilir enginn um það og það deilir heldur enginn um það að það sé þörf á uppbyggingu á vegakerfinu. Það eru held ég allir sammála um það. Þetta er spurningin um það hvernig við förum að því.
Svona í lokin, frú forseti, þá held ég að það sé mikilvægt, fyrst við erum að tala um ferðamenn í þessu samhengi, og náttúrlega besta leiðin til að byrja með að bjóða þeim ferðamönnum sem koma með Norrænu upp á góð göng frá Seyðisfirði upp á hérað. Það væri ágætt að byrja á því. Þá getum við virkilega boðið þá velkomna. Aftur á móti hvet ég hæstv. meiri hluta til að horfa á það hvort ekki sé æskilegt að hlusta á varnaðarorð okkar sem settum hér lög um innviðagjald á síðasta kjörtímabili, vegna þess að við teljum að við höfum lært af reynslunni af því hvernig að því var staðið. Ég held að það sé mjög æskilegt í þessu máli sömuleiðis að flýta sér hægt um gleðinnar dyr þegar við förum að breyta gjaldstofnum, skattheimtu og fleiru sem snýr að kílómetragjaldi og því hvernig við ætlum að fjármagna til framtíðar uppbyggingu vegakerfisins.