kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Við erum að ræða um kílómetragjald, enn aðra fyrirhugaða skattahækkun ríkisstjórnarinnar. Skrefið er réttlætt með því að vísa til þess að kerfisbreytinga sé þörf frekar en að málið snúist um tekjur í ríkissjóð þótt af öllum gögnum málsins, umsögnum, umræðum og áliti fróðra manna sé ljóst að málið snýst um skattahækkun. Ef markmiðið væri að bæta kerfið og gera það skilvirkara til frambúðar væri þetta líklega ekki leiðin sem væri farin vegna þess að þessi leið og þetta skref snýst um tekjuöflun en bersýnilega ekki um að bæta kerfið.
Að því sögðu tek ég fram að þegar til lengdar lætur tel ég síst útilokað að einhvern veginn á þessa lund verði kerfið þegar upp er staðið, þ.e. að menn greiði fyrir kílómetrana sem eknir eru. Það er engin fjarstæða, það er auðvitað sanngirnismál en eins og sakir standa núna — eftir að þessu kerfi hefur verið komið á í rafbílunum og er í raun og veru bara farið að rúlla með sæmilegum hætti þar og sömuleiðis halda bensínbílarnir áfram að greiða fyrir notkun veganna í gegnum olíugjaldið — þá er spurningin hvort þessi tímapunktur sé viðeigandi miðað við það mikla umstang sem því fylgir að ráðast í að krefja alla eigendur bensínbíla og dísilbíla um þessi gögn í stað þess að leyfa þessu — ef við gefum okkur að orkuskiptin séu hægt og rólega að verða með tíð og tíma þó að maður viti náttúrlega ekki nákvæmlega hvernig það þróast.
Ég hef verið þeirrar skoðunar almennt að orkuskiptin muni verða þegar það er hagkvæmt, að ríkið þurfi ekki að leggja í það tugi milljarða að koma mönnum yfir í rafmagnsbíla þegar það er ekki hagkvæmt út frá aðstæðum, hleðslu og einfaldlega tækninni. En það er kannski önnur saga. Mín skoðun er sú að ef hlutdeild rafbíla eykst og eykst þá færast auðvitað sífellt fleiri bílar yfir í það kerfi sem er komið á legginn í rafbílunum. Í stað þess að taka allt kerfið núna og umbylta því í einu vetfangi, eins og er vel að merkja fyrirhugað eftir einhverja nokkra daga, tvær, þrjár vikur, og færa það frá því að innheimta þessara gjalda við akstur sé í raun og veru falin einhverjum þremur, fjórum olíufélögum í gegnum það að þessi gjöld eru lögð á olíuna yfir í það að fleiri hundruð þúsund bílar séu komnir undir og að ríkið sé þá komið með það í fangið að hafa yfirsýn yfir það — það er algerlega augljóst að það er risavaxið verkefni sem er gífurlega erfitt að sinna.
Ég hef alveg trú á því að tæknilegar forsendur muni breytast með tíð og tíma eftir því sem bílar eru tæknivæddari, að þegar þetta eru orðnar hálfgerðar tölvur, hvað þá þegar þetta eru orðnir rafmagnsbílar, verði þetta miklu einfaldara og þá væri í raun og veru á einhverjum tímapunkti ef mönnum líkar það auðvitað hægt að sjá fyrir sér að greiðsla þessara notkunargjalda gæti farið algerlega sjálfvirkt fram í gegnum það hversu mikið þú ekur. Þetta mun þróast í þá átt ef við viljum hafa þetta fyrirkomulag á greiðslunum. En að segja núna að þetta séu, hvort það eru 3,5 milljarðar sem er talað um að þetta muni afla ríkissjóði, bara fyrir það, en að gæta ekki að því að það er ekki allur sá kostnaður sem hlýst af þessu. Þetta eru tekjurnar sem fyrirhugað er að fá inn í ríkissjóð en ef ég man rétt er eitt ferðaþjónustufyrirtæki að tala um 150 milljónir í kostnað bara við að sinna þessu nýja verkefni. Þetta er kostnaður sem getur skipt einstaka fyrirtæki verulegu máli. Þegar á heildina er litið getur maður séð fyrir sér að af hljótist raunverulega mikill kostnaður fyrir atvinnulíf bara við að sinna þessari umsýslu fyrir ríkið, ég tala nú ekki um þann kostnað sem liggur fyrir að muni falla í skaut ríkisvaldsins við að sinna kerfinu. Þannig að ég tel það skammsýni að vilja keyra þetta í gegn núna.
Það er ekki vegna þess að maður sé á einhverjum hugmyndafræðilegum grunni í sjálfu sér á móti nákvæmlega þessu fyrirkomulagi, eitthvert fyrirkomulag verður að finna utan um þessi mál,en tæknilegar forsendur fyrir því að segja við alla eigendur bensínbíla og dísilbíla að núna þurfi bara að byrja að „rapportera“ þessi gögn í sífellu eykur álag á samfélagið, auðvitað sannarlega helst fyrirtæki ef maður hugsar út í það en líka einfaldlega óbreytta borgara. Það er náttúrlega ákveðið verkefni sem lendir hjá þeim að þurfa að fylgjast með þessu og pæla í þessu og greiða á grunni þessa. Og af því að þetta er skattahækkun eru þetta auknar álögur á vissa bíla — ekki alla, þetta skiptist ólíkt. Það er búið að reikna þetta út og á einhvern undarlegan hátt er niðurstaðan sú að þetta er helst að auka kostnað við sparneytna fjölskyldubíla samkvæmt því sem ég fæ best skilið. Ef sparneytinn fjölskyldubíll er að keyra einhverja 20.000 km á ári samkvæmt útreikningi Félags íslenskra bifreiðaeigenda eru það 50.000 kr. aukalega á ári sem greiðast. Í stað þess að greiða bara eldsneytisgjöldin færist þetta yfir í kílómetragjaldið. Kostnaðurinn eykst umtalsvert hjá sparneytnum fjölskyldubílum, sem er þessi hópur í samfélaginu sem maður hefði síst viljað að þetta kæmi niður á, þ.e. litlar fjölskyldur á sparneytnum venjulegum bílum. Þar lendir þetta helst.
Það er að mínu mati bagalegt að fara í slíkar breytingar þegar ávinningurinn er svona óljós. Ég tala nú ekki um ef maður hugsar um þessa 3,5 milljarða sem fyrirhugað er að afla með þessu og við vitum, sérstaklega í ljósi reynslunnar að undanförnu, að jafnvel þótt stjórnvöld hækki með einhverjum hætti skatthlutfall þá er ekki alltaf gefið að heimturnar verði í samræmi við markmiðin, hvað þá núna, eins og ég vísa til, þegar við höfum þessi nýlegu dæmi af innviðagjaldi gagnvart skemmtiferðaskipum þar sem menn hækka í von um auknar tekjur en raunin verður öfug. Þannig að maður veit ekki fyrirfram gagnvart þessu gjaldi að heimturnar verði raunverulega meiri eða drýgri. Maður getur ekki vitað það út frá því hver er samfélagslegi kostnaðurinn, kostnaður fyrirtækja eða einstaklinga við umstang í kringum þetta. Þið getið rétt ímyndað ykkur hversu mikið af fólki þarf að fara að velta þessu fyrir sér og hversu mikið af orku fer í það þegar við getum gefið okkur og sagt okkur núna að það liggi fyrir að við séum að innheimta notkunargjald af fólki í gegnum olíugjaldið. Við erum að gera það nú þegar. Við erum að færa til í kerfinu sem veldur einfaldlega miklu meira álagi og eins og ég segi veldur það miklu meira álagi á þessum tímapunkti.
Maður er ekkert að segja að á einhverjum tímapunkti verði ekki mun einfaldara að gera það einmitt svona, hvað þá ef menn verða flestir komnir á rafmagnsbíla og annað. Þá er sjálfsagt að horfa til þess að þetta endi svona, en eins og kerfið er núna, við vitum að það eru bara mjög margir að keyra eldri bensínbíla og þá munu menn þurfa að gera þetta handvirkt. Þegar bílarnir fara í skoðun þarf að fylgjast almennilega með þessu. Þetta er auðvitað skráð, það er haldið utan um þetta nú þegar en þarna eru náttúrlega þeir sem skoða bílana komnir í ákveðið eftirlitshlutverk í einhverjum skilningi, að þurfa að fylgjast með þessu eins og maður sér fyrir sér að raunin verði, og svo auðvitað bara fólkið sjálft.
Það er ljóst í mínum huga að þetta er ekki góður tímapunktur fyrir þetta mál. Það væri að mínu mati mun nær að skoða í fyrsta lagi nákvæmlega hvernig þetta lendir á einstaka bílum. Það er mjög athyglisvert að það eru sannarlega mjög skiptar skoðanir á því hvernig beri að innheimta gjöld af bifreiðum út frá notkun þeirra. Lárus Elíasson verkfræðingur hefur m.a. lagt Félagi íslenskra bifreiðaeigenda lið við þeirra útreikninga en hann sendi líka inn sjálfstæða umsögn við þetta mál og hann talar um að skattleggja öll ökutæki undir 3.500 kílóum jafnt og fella jafnframt niður gjöld á eldsneyti, að það sé í samræmi við markmið stjórnarinnar, að í raun og veru sé með þessu verið að færa gjaldtöku og kostnað af rekstri stærri og þyngri bíla yfir á smábíla.
Nú get ég ekki gert þessi orð alveg að mínum en það er hins vegar umhugsunarefni hver raunverulegu áhrifin eru þegar við erum að reyna að móta sanngjarna nálgun á það að taka gjöld af fólki fyrir notkun veganna. Margir hafa auðvitað haldið því fram að í langflestum tilvikum felist töluverð sanngirni í því að gera það bara í gegnum bensínið vegna þess að ef þú ert á þyngra tæki þá ertu að nota meira bensín. Þá er líka meiri eyðsla og þá er þetta einhvern veginn í samræmi við notkunina eins og sakir standa. En það er í raun og veru verið að kippa því úr sambandi með því að miða bara við kílómetrann. Það er líka mjög athyglisvert að þetta er í raun og veru ekki út frá þeim sjónarmiðum, út af sliti á vegum og hvernig menn eru að nota þá. Þá er þetta náttúrlega ekki sanngirni ef maður tekur mark á þessum verkfræðingi. Ég er síst sérfræðingur í þessum þáttum en þetta er hins vegar umhugsunarefni, sannkallað umhugsunarefni.
Ef maður lítur aðeins til sjónarmiðanna sem koma fram í umsögn Félags íslenskra bifreiðaeigenda — sem eru fjölbreytt og góð og margt þar sem er vert að hugsa um í þessu sambandi líka vegna þess að það eru langflestir hér sem reiða sig á bíl á hverjum einasta degi til mjög margvíslegra verka og ég tel það ákveðinn ábyrgðarhluta af hálfu ríkisvaldsins að ganga ekki nærri fólki í sambandi við notkun þess á bílum sínum, að gera þetta sanngjarnt. Ég er ekki að tala gegn því að tekin séu eðlileg gjöld af þeim sem nota kerfið en það þarf að vera eitthvert hóf í þessu. Eins og Félag íslenskra bifreiðaeigenda bendir á eru skattar og gjöld á bílaumferð að skila vel yfir 100 milljörðum kr. í ríkissjóð núna í ár. Ég vísa til þess, með leyfi forseta, að þeir benda á og skrifa orðrétt:
„Varhugavert er að skattpína umferðina úr hófi.“
Þeir benda líka á að til nýframkvæmda og viðhalds samgöngumannvirkja á Íslandi renni aðeins um þriðjungur þess fjár sem aflað er. Það er því náttúrlega líka ákveðin umræða í þessu: Í hvað fara þessir peningar? Eins segir, með leyfi forseta:
„Greiðar samgöngur eru lífæð samfélagsins og ein helsta undirstaða efnahagslífsins. Þjóðhagslegur ábati þeirra er óumdeildur. Kæfandi skattlagning sem lamar frjálst flæði umferðar vinnur gegn eðlilegum hagvexti […] Það dapra við þessar fyrirhuguðu skattahækkanir er að tekjuaukinn á að mestu að koma til vegna notkunar fjölskyldubíla.“
Sá hagsmunahópur sem maður lítur kannski til þegar þessi aðgerð stendur fyrir dyrum eru venjulegir fjölskyldubílar sem koma í raun og veru illa út úr breytingum sem munu valda ekki aðeins fjölskyldubílnum heldur fyrirtækjum, samfélaginu öllu og auðvitað ríkisvaldinu og kerfinu — færa þeim risastórt nýtt verkefni í hendurnar sem er ástæðulaust að gera á þessu stigi og það er einfaldlega vegna þess að tæknilegu forsendurnar eru þess eðlis núna að það mun rosaleg handavinna rísa af þessum breytingum. Það er kannski helsta ábendingin.
Aðeins áfram frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) um fjölskyldubílinn. Þeir skrifa, með leyfi forseta:
„Vegakerfið hefur ekki fengið nauðsynlega fjármuni til viðhalds og uppbyggingar árum saman og víða hefur það grotnað svo mikið niður að vegfarendur eru í hættu. Þá hefur uppbygging vegakerfisins að litlu leyti mætt stóraukinni umferð þungaflutningabíla. Fjölskyldubíllinn er skattlagður langt umfram þann kostnað sem hlýst af notkun hans. Bíleigendur hafa mátt þola aukna skattbyrði á liðnum árum. Sporin hræða því stjórnvöld hafa svikið þjóðina um uppbyggingu og þjónustu við vegakerfið árum saman þrátt fyrir aukna skattlagningu.“
Við höfum enga tryggingu fyrir því á þessu stigi að þessar breytingar verði ekki bara enn annað dæmi um þetta sem FÍB vísar til. Hér eru því margir þættir saman komnir sem eru að mínu mati óráðlegir. Þetta er einfalt, hér er verið að hækka skatta. Hér er verið að stækka báknið, sannarlega að stækka báknið. Ef við tölum einhvern tímann um báknið og ef notkun slíks hugtaks er einhvern tímann réttlætanlegt þá er það í þessu vegna þess að hér myndast ákveðið bákn utan um risavaxið verkefni sem er nú þegar verið að leysa með tiltölulega skilvirkum hætti sem enginn gerir athugasemdir við í sjálfu sér. Hér er því verið að stækka báknið, hér er verið að hækka skatta og á vissan hátt kemur þetta auðvitað á endanum niður á samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.
Það er náttúrlega algerlega augljóst ef þú skoðar það sem ferðaþjónustan og bílaleigurnar eru að vísa til að þetta er þeirra samkeppnisstaða. Það er held ég engu logið um það að það er mjög harður samkeppnismarkaður þar sem munar um hverja krónu í verðlagningu og öðru eins. Þetta skilar sér í því að enn og aftur eru þessi áhrif sem er vísað til í sambandi við innviðagjald gagnvart skemmtiferðaskipum. Þessi aukna skattlagning getur endað á að skila einfaldlega minni tekjum í ríkiskassann í staðinn. Ef þú ert farinn að skerða samkeppnishæfni fyrirtækjanna þá getur það hreinlega komið niður á tekjunum á hinum endanum og þá situr þú eftir og getur augljóslega litið svo á að það hefði betur verið heima setið en af stað farið í þeim efnum. Það er því mjög mikilvægt að menn átti sig á ábyrgð sinni þegar þeir eru að innleiða svona bákn í kerfið, þegar tæknilegar forsendur virðast ekki vera alveg fyrir hendi til að leysa þetta verkefni með skilvirkum og þægilegum hætti. Við viljum skilvirkt ríkisvald. Við viljum ekki ríkisvald sem leggst að ástæðulausu eins og mara á venjulega borgara, á fyrirtæki. Eitt er eðlilegt eftirlit. Það getur verið íþyngjandi. Það er í eðli sínu íþyngjandi að sæta eftirliti. Gjöld eru í eðli sínu íþyngjandi en ekki ónauðsynleg. Í eðli sínu er þetta náttúrlega ákveðin gullhúðun þess verkefnis sem er að innheimta þessi gjöld af borgurunum — eins og þetta blasir við mér, eins og ég skoða gögnin.
Það hafa verið gerðar ítrekaðar tilraunir til að koma þessu í gegnum þingið en ágætum félögum okkar í stjórnarandstöðunni, sem eru að einhverju leyti samsekir í þessu máli, hefur alveg snúist hugur. Ég tel það ekkert endilega merki um einhverja pólitík heldur held ég mun frekar að menn séu að skoða þetta mál betur og átta sig á því að þetta sé ekki skynsamlegt á þessu stigi máls. Vísað er til þess að sá veruleiki hafi verið runninn upp fyrir mönnum þarna innan ríkisstjórnarinnar á sínum tíma en að síðan séu einhverjir aðeins síðar að komast að þessari niðurstöðu. Ég tel mjög eðlilegt að skipta um skoðun ef málið blasir við. Mér finnst umfjöllun í nefndaráliti 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, sem undirritað er af hv. þingmanni Miðflokksins, Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, ná ágætlega utan um þetta. Hér segir, með leyfi forseta,
„Eftir þinglega meðferð þessa máls er fyrirséð að ef frumvarpið verður óbreytt að lögum leiðir það til mikils óhagræðis. Kerfið verður gríðarlega þungt í vöfum og aukinn kostnaður kemur hart niður á stjórnvöldum, fyrirtækjum og heimilum. Í engu öðru landi hefur áþekkt kílómetragjald verið innleitt vegna þess flækjustigs sem slíku kerfi fylgir og vegna ýmissa annmarka sem tilgreindir eru í umsögnum um málið. Ekki hefur verið talið forsvaranlegt að ráðast í slíka vegferð til þessa.“ — Hér segir einnig að óþarfi sé að umbylta kerfi sem virkar vel þegar fyrirséð er að nýtt kerfi hafi gríðarlega neikvæð áhrif um land allt eins og fjöldi umsagnaraðila hafi bent á.
Ég tel að ég hafi farið hér yfir margvísleg rök gegn þessu. Nú er einhver umræða líka í þessu máli um það hvernig þetta kemur niður á höfuðborginni og svo landsbyggðinni. Á það verður auðvitað að benda í sambandi við landsbyggðina að ef kostnaður eykst við akstur þá er það augljóslega eitthvað sem bitnar til lengri tíma á landsbyggðinni. Það blasir við. Hvort sem það er vegna vöruflutninga til landsbyggðar eða vöruflutninga frá landsbyggð, að flytja vörur í bæinn, þá endar það að sjálfsögðu á að bitna á landsbyggðinni. Að menn ætli að afneita því með því að bera saman tölur innan alls kerfisins tel ég auðvitað ekki alveg virka í þessari umræðu. Það verður að horfast í augu við að að sjálfsögðu kemur svona gjald á landsbyggðinni ekki síður en á höfuðborgarsvæðinu.
Að þessu sögðu tel ég að rétt sé, eins og við tölum um í nefndarálitinu, að vísa málinu til ríkisstjórnar til að vinna það betur. Ég tel að það megi bíða jafnvel í nokkur ár með þetta ef menn vilja sannarlega hafa kerfið með þessum hætti. Tæknilegu forsendurnar eru mjög hæpnar núna og það getur valdið nokkrum skaða á hagsmunum almennra borgara og sömuleiðis íslenskra fyrirtækja að gera þetta svona núna — eða skaða? Maður vill heldur ekkert vera dramatískari en maður þarf að vera. Óhagræði er einfaldlega hlutlausa lýsingin á því sem þetta veldur augljóslega fyrir óljósan ávinning. Það er hæpið að allir peningarnir skili sér endilega þegar til lengdar lætur heldur er þetta bara aukin skattbyrði. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig tekjurnar þróast af þessu en hin varatillagan í nefndarálitinu er auðvitað að fresta gildistökunni. Það er auðvitað skömminni skárra ef menn vilja fara þá leið en að öðru leyti að vinna málið betur og skoða hvernig við getum mun frekar leyft þessu kerfi sem hefur verið tekið upp í rafbílunum að fasast inn sem meiri hluti kerfisins ef rafbílar verða með tíð og tíma meiri hluti kerfisins í stað þess að taka alla bíla landsins í einum hvelli inn í mjög stórt og þunglamalegt verkefni sem leggst á ríkisvaldið og allt samfélagið.