157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:08]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir mjög góða ræðu og yfirferð. Nú er það þannig að það er innheimt kílómetragjald af rafbílum. Bílaleigurnar hafa talað um að þær séu að innheimta svona 70–80% af kílómetragjaldinu sem til fellur, annað nær ekki innheimtast. Það kemur fram í umsögn Bílaleigu Akureyrar að það er 8,7% af bílaflotanum þeirra samanborið við svona 6–13% í öðrum löndum. Þegar reynslan af innheimtu á rafbílana er með þessum hætti og það á að stækka þetta yfir á alla bíla þá veltir maður fyrir sér: Má þá ekki segja að með þessari innheimtu sé í rauninni verið að senda reikninginn á bílaleigurnar og þær sitji uppi með skellinn í ljósi þeirrar reynslu sem nú þegar er af þessum fáu rafbílum sem eru um 8,7% af bílaflota Europcar t.d.? Er ekki bara verið að senda þeim reikninginn og er það réttlætanlegt og sanngjarnt, virðulegur forseti?