157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:10]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er mjög verðug spurning og það eru auðvitað á vissan hátt sláandi lélegar heimtur af þessu, sem þeir væntanlega innheimta af viðskiptavinum sínum með einum eða öðrum hætti en gengur svona upp og ofan greinilega, 70–80% af rafbílum þar sem er komin reynsla af þessu kerfi. Nú eru þeir sem leigja sér rafbíla á Íslandi — það geta auðvitað í eðli sínu verið margvíslegar ástæður fyrir því en það er í eðli sínu eilítið, með leyfi forseta, nördalegt að gera það í einhverjum tilvikum, þannig að maður hefði nú haldið að ökumennirnir sem eru að leigja rafbíla hjá bílaleigunum séu svolítið meðvitaðir ökumenn þannig að þeir myndu einmitt halda utan um að þeir þurfi að greiða þetta gjald. Út frá því gæti maður auðvitað teiknað það upp í höfði sér að heimturnar þegar þetta verður komið í allt kerfið verði enn þá lakari en 70–80%. Þá ertu kominn með slíkan reikning að það getur bara haft veruleg neikvæð áhrif á rekstur þessara félaga sem eru, þannig að það sé tekið fram, auðvitað nú þegar í þeirri stöðu að þurfa ekki að kljást við þetta vandamál heldur gerir ökumaðurinn það bara með bensíngjaldinu. Þarna er því bara verið að búa til glænýtt vandamál.