kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Auðvitað væri það ánægjulegt til tilbreytingar svona einu sinni að við værum að ræða hér lækkuð gjöld og álögur á íbúa þessa lands. En svo er nú ekki. Af því að við erum með vinstri stjórn sem er haldin þessari skattasýki sem hún er og vill hækka allar álögur og gjöld á í rauninni allt milli himins og jarðar þá velti ég fyrir mér hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér í því, eins og hann hefur svo sem komið inn á: Hvernig fær hæstv. ríkisstjórn það út að í staðinn fyrir að rukka nokkur handfylli olíufélaga um olíugjaldið sé hagkvæmara að senda reikninga með tilheyrandi kostnaði upp á mörg hundruð milljónir á yfir 100.000 bifreiðaeigendur á Íslandi? Hvaða vit og hvaða glóra er í því? Mig langar bara að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála þessari nálgun. Auðvitað væri betra ef við værum að ræða um að lækka hér gjöld en af því að við erum með vinstri stjórn þá erum við að tala um gjaldahækkanir. Þetta er þó a.m.k. praktískari aðferð og kostnaðarminni.