kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu og vangaveltur. Af því að þetta hefur nú verið rætt á nokkrum þingum og þegar maður sér svona frumvarp sem er upp á einhverjar 60 plús síður þá veltir maður eiginlega fyrir sér hvort við séum ekki komin út í skurð af því að þetta er tiltölulega afmarkað svið sem er til umræðu. Stundum varðandi góðar hugmyndir og nauðsynlegar — ég meina, það er augljóst hver var hvatinn að þessu. Það er auðvitað að við vorum ekki að fá gjald af ökutækjum sem voru með hreina orku. Þetta er ákveðið viðbragð því. Ég held hins vegar að það hafi sýnt sig í umræðunni að þetta sé kannski ekki nægilega vel ígrundað og að við ættum kannski að byrja í smærri skrefum. Þá langar mig til að spyrja hv. þingmann: Væri ekki bara eðlilegast að ríkið byrjaði á því að taka sinn eigin flota, alla bíla sem heyra undir ríkið, og þeir myndu í rauninni bara að prófa þetta á því áður en lengra er gengið?