kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir mjög góða tillögu. Ég held að þetta komist einmitt nálægt kjarna málsins, sem er 60 blaðsíður af flækjustigi sem er og verður flókið fyrir samfélagið, fyrirtæki, ríkisvaldið og þá starfsmenn sem fá þetta í fangið að vinna úr frá degi til dags. Það bara liggur fyrir. Þetta er mun flóknara en það kerfi sem vísað er til hérna, að við séum með þrjú, fjögur olíufélög sem bara innheimta þetta sjálfvirkt. Ef menn hafa síðan það einarða markmið að hækka heimturnar og auka gjaldtöku á bifreiðum, hvort sem það væru þá rafbílarnir sem menn myndu vilja sneiða meira af eða aðrir bílar, þá er mönnum í lófa lagið að hækka það gjald einfaldlega — ef það er markmiðið þá væri auðvitað hægt að gera það — á meðan þetta kerfi er gjörsamlega tæknilega ótímabært. Það er bara svona praktísk niðurstaða sem maður kemst að og fínt væri að ríkið fengi að súpa seyðið af þessu til að átta sig á málinu. Ég er alveg sammála því.