kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég heyri að tillaga mín hefur vakið kátínu hjá stjórnarliðum og það er gott að heyra að við höfum húmor hérna svona síðla kvölds. Mig langar til að nefna annað. Af því að við erum kannski í svona skrýtnum tillögum þá langar mig að velta því upp að nú er vegakerfið á Íslandi æði mismunandi eftir t.d. kjördæmum og á ég þá að greiða sama kílómetragjald þegar ég er að keyra Vatnsnesið alla daga og ef ég byggi t.d. hérna á höfuðborgarsvæðinu þar sem ég er að keyra malbikaðar götur? Ég er að borga sama gjaldið, ekki satt? Er það sanngjarnt? Svo að ég varpi því nú bara hreinlega hér upp, ætti ég ekki bara hreinlega kröfu á ríkið um að það geti ekki rukkað mig nema vegstaðlar séu þá í samræmi við það sem er peninganna virði?