kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir spurninguna. Hún er í sjálfu sér áleitin, spurningin hver sanngirnin er í þessari gjaldtöku. Þetta er auðvitað í eðli sínu býsna breið stroka, svona aðgerð að ríkisvaldið rukki menn fyrir hvern þann kílómetra sem keyrður er. Þú ert auðvitað bara að fara að láta eitt yfir alla ganga. Það var náttúrlega það sem ég benti á í ræðu minni, að ef markmiðið er að fá sanngjarna innheimtu af því álagi sem viðkomandi er að valda vegakerfinu þá er þetta líklega ekki leiðin. Eins og bara verkfræðingar hafa bent á valda ökutæki stórkostlega mismunandi álagi eftir því hversu þung þau eru. Það er því mjög erfitt að finna eina sanngjarna lausn í þessu máli og það er sannarlega spurning um þetta samspil á milli þess hvernig innviðirnir eru á hverjum stað. Þannig að þetta er verðug spurning, sem er á meðal þess sem ég teldi að ætti að vera áframhaldandi umræða um í þessum málum, hvernig við háttum þessari gjaldtöku í stað þess að vaða af stað með þetta hér.