157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:19]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð nú að byrja á að þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir fína ræðu. Ég var mjög hrifin af þessum hugmyndum hans um tæknina og hvað tæknin er að færa okkur áfram. Ég er alveg sammála honum í því að það eru mörg tækifæri fyrir tæknifyrirtæki til þess að gera þetta allt einfaldara. Ég sé það fyrir mér, eins og hv. þingmaður, að þetta verði allt bara frekar sjálfkrafa af því að bílarnir eru orðnir bara keyrandi tölvur, svo gott sem. Þannig að ég deili því með honum að það séu mörg tækifæri í þessu. Hann taldi að þetta væri einhvern veginn tæknilega ómögulegt að svo stöddu, að þetta væri bara ekki komið nógu langt. En nú er það þannig að 55.000 rafbílar eru nú þegar komnir inn í kerfið og það hefur gerst án þess að það séu mikil vandkvæði og ég vil bara spyrja: Telur hann þá reynslu sem er þegar komin á, 55.000 bílar, ekki nógu góða til að halda áfram með kerfið? Það eru engin aðkallandi vandamál. Ég vil kannski fá hugleiðingar hans um það.