157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:20]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir góða spurningu. Ég held því ekki fram að þetta sé tæknilega ómögulegt heldur tæknilega ótímabært að mínu mati. Þótt 55.000 rafbílar séu komnir inn í kerfið þá eru þessir rafbílar langflestir einmitt það sem hv. þingmaður kallar keyrandi tölvur. Þeir eru miklu nýrri og tæknivæddari og jafnvel tæknivæddari en þeir nýju bensínbílar sem eru á markaði vegna þess að rafbílar eru á einhvern sérstakan hátt mjög tæknilega innréttaðir. Ef maður keyrir bara tíu ára gamlan bíl eða 15 ára gamlan bíl þá er þetta augljóslega engan veginn sambærilegt við það sem maður getur gert og gæti gert með tækninni í einhvers konar sjálfvirku utanumhaldi gagnvart svona tölfræði. Þá yrði maður náttúrlega alltaf bara að skrifa þetta niður á blað með penna út frá mælinum hjá manni og uppfæra það þannig. Þar ertu kominn í þetta handvirka ferli sem ekki 55.000 bílar fara heldur fleiri hundruð þúsund bílar sem eru einmitt eldri og ekki jafn tæknivæddir lenda óhjákvæmilega. (Forseti hringir.) Þess vegna er ég að segja að þetta er ekki tæknilega ómögulegt. Ég hef sannarlega trú á því að tæknin geti hjálpað okkur með svona mælingar ef við viljum hafa þær svona. En þetta er augljóslega ekki tímapunkturinn. Ég held kannski áfram í seinna andsvari.